Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 20

Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 20
sagnahefð á klaustrunum og hinum tekjuhæstu kirkjusetrum bar svo frá að ella væri aðeins söknuður í fátækt. Fjarhuga eftirsjánni, sem felur í sér fyrirmennsku, umfram allt forgöngu. Jón Arason Hólabiskup var síðasti Islendingurinn á miðöldum páfakirkjunnar, en konungsarfí Kalmarssambandsins átti smáa hlutdeild og réði næsta litlum sagnaskilum. Undrabamið í íslenzkum stjómmálum siðbyltingarinnar, Guðbrandur Hólabiskup, bjargaði hinum afar fáu afkomendum írskrar menningar og kænna Austmanna frá gleymd, útmáun. Því er þessi inngangur um Hóladómkirkju, ekkjuna í túni búauðgisstefnunnar, nokkuð teygingarsamur, að biskupslaust var á Hólum eftir 1798. Síðasti stólsbiskupinn var dáinn, afkomandi síra Einars skálds í Eydölum, sonarsonur síra Stefáns Olafssonar skálds í Vallanesi. - Ekki var einu sinni staðarprestur á Hólum eftir 1868. Úr var bætt í þeim áfangaskilum, sem frá sagði í þættinum um Hólatuminn og bein hinna ódauðlegu feðga. Voru það söguskil, en hitt mest í kirkjusögu stólsins, að biskup var skipaður í stöðu á Norðurlandi með lögum frá Alþingi 1909. Hinir 3 íjórðungamir réðu vitaskuld meiri hluta á Alþingi. Vegna þeirrar vildar og mikils álits flutningsmanns frumvarpsins um endurreisn Hólastóls, fekk mál hans sigur með því að stiftsbiskupar yrði 2, annar útvalinn í hópi norðlenzku prestanna, hinn af andlegrar stéttar mönnum í Skálholtsbiskupsdæmi. Jón Þorkelsson fomi, skáld og þjóðskjalavörður, talaði svo fyrir málinu, að úr rættist á einstæðan hátt, þó að andstaðan væri mikil. Bæði vegna sparsemdar og svo skilningsleysis á sagnhelgri þjóðarhefð. Þá voru þeir málsmetandi menn, innan þings og utan, sem töldu áhættu að sýna herraþjóðinni og dönsku konungs- og kirkjuvaldi í tvo heimana. Stiftisbiskup til Hóla, aukabiskup í þjóðlandi, sem var eitt biskupsdæmi frá 1801, var ekki aðeins full undantekning hinnar alþjóðlegu reglu, að einn biskup væri í einu biskupsdæmi, heldur væri slík lagasetning Alþingis ögrun við hið danska vald á næsta viðkvæmum tíma heimastjómarinnar. Islandsráðherra í danska ríkinu með Dr. Jón Þorkelsson. (Mynd: Faðir minn, 1950). Minnisvarði Jóns biskups Arasonar á Munkaþverá eftir Guðmund Einars- son frá Miðdal, afhjúpaður 23. ágúst 1959. (Myndfrá Aðalheiði Guðmundsdóttur). búsetu í Reykjavík gerði hinn unga og fámenna kaupstað að höfuðsetri = höfuðborg, í stað Kaupmannahafnar. 1909 sá fyrsti þingmaður Reykvíkinga, dr. Jón Þorkelsson, nýtt tækifæri í sjálfstæðisbaráttunni. Af hverju endurreisn Hóla fremur en Skálholts í þessum áfanga? Dr. Jón taldi víst meirihlutafylgi við stiftisbiskup nyrðra í sögulegri virðingu fyrri tíðar á Islandi, arftaka Jóns Arasonar Hólabiskups, fremuren kirkjuhöfðingjum Síra Hákon Loftsson, prestur kaþólskra í Hólastifti 1952-1966. Hann kaus sér kirkjuleg á Munkaþverá (d. 1977). * ' - ' Síra Stefán Ólafsson skáld í Vallanesi. (Lágmynd Ríkharðs Jónssonar 1970). Norðanlands eftir siðskipti. Biskup íslands í Reykjavík var embætti Skálholtsbiskups eins og í fyrstu var, 1056-1106. Kennimanna oddviti, biskupsvígður prestur í Norðurlandi, var svo stórt skref í endurreisn sjálfstæðs lýðveldis, að síðan þurfti ekki að sækja biskupsvígslu til Danmerkur. Síra Eggert Pálsson á Breiðabólsstað, þingmaður Rangæinga, fann hinn rétta tón, þegar hann snerist á sveif með dr. Jóni Þorkelssyni og 212 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.