Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2007, Page 36

Heima er bezt - 01.04.2007, Page 36
Helgi Guðmundsson, Apavatni: Hænu-Gvendur Þegar ég hafði lesið íslandsklukkuna, þar sem Jón Hreggviðsson er aóal sögupersónan, fór ég að grugga upp og leita í minningum mínum, hvar á lífsleiðinni ég hefði orðið var við mann, sem líktist þessari sögupersónu. Loks fann ég mann, er ég kynntist dálítið og heyrði frá, þegar ég var unglingur. Var hann þá miðaldra og kemst í hug mínum næst þeirri mynd af Jóni Hreggviðssyni, sem ég hafði hugsað mér. Kemur nú það, sem ég hef af karli þessum að segja. Hann var svartur, kaldur, snöggur, hortugur, hafði tjúguskegg og spýtti mórauðu um tönn. Hann baukaði við bókband og kynntist gömlum skmddum. Eina hafði hann, sem hann nefndi Sábeiðispredikanir. Hún var með Hólaletri, mjög fom, öll músétin á köntunum. Hann sagði að þetta hefði ekki verið næsta húslestrabók á undan Vídalínspostillu. Það hafði verið Stúrmshugvekjur, en þar næst áður hefði þjóðin lesið þessar predikanir um aldaraðir og var þá komið aftur í óraíjarska fomeskju. Aldrei hef ég heyrt þessa bók nefnda, hvorki fyrr né síðar, og ekki veit ég hvað af henni hefur orðið, hvort hún hefur verið jörðuð með Gvendi, eins og Rauðskinna með Gottskálki biskupi, eða látin á Arnasafnið í Kaupmannahöfn. Hvort Danir skila henni hingað heim, veit ég ekki. En gaman væri að vita, við hvaða Sábeiðir bókin var kennd. Um það varðist Gvendur allra frétta. Hænu-Gvendur hafði þótt brellinn og pöróttur í æsku. Þegar hann var hjá föður sínum ungur, tók hann upp á því snjallræði að klófesta kindur, sem karl faðir hans átti, og kasta þeim niður fyrir háa hamra, sem eru þar utan í fjallinu, og lágu kindurnar í tætlum þar neðan undir. Nú segir hann karli að kominn sé slæmur gestur í féð. Sé það mórauður strákur með afar stóran hatt á hausnum. Hann kvaðst hafa haft tal af honum og hafí hann sagst vera sendur hingað vestan úr Kjós og hafí sér verið skipað að drepa allt fé bóndans og sjálfan sig á eftir. Sagði Gvendur að náungi þessi muni vera illur viðskiptis og mjög illa kynjaður, kominn af Axlar-Birni í beinan karllegg og hafi Sveinn skotti verið langafi hans, og bæði afi hans og amma hafí verið þjófar. Síðan segir hann að karl hafí um tvo kosti að velja, annar sá að láta skeika að sköpuðu um aðgerðir stráksins, en hinn að hann láti sig fá allt féð og þá skuli hann koma stráknum fyrir og niður, svo að hans verði ekki vart framar. Karl tók vitanlega síðari kostinn, og varð því Gvendur eigandi að öllu fé hans. Kenningarnafn sitt fékk Gvendur af kellu sinni. Hún hét Lofthæna og var gengin fyrir ættemisstapa, þegar ég man eftir. Einhvem veginn fékk ég þá skoðun, að hún hefði verið klædd í skinnúlpu eða skinnpils, sem hefði náð niður fyrir hnjákollana að framan, en að aftan ekki nema ofan á þjóin. Lofthæna var úr Skaftárþingi og Gvendur reyndar líka. féJStsl Framhald afbls 196. Og brennsla baunanna gat áreiðanlega verið nokkurt vandaverk, og hafa menn sagt mér að bragð og gæði kaffisins hafi stundum farið nokkuð eftir því hversu vandvirkur sá var, sem annaðist brennslu baunanna. Vel þurfti að fylgjast með þeim, hræra jafnt og þétt í bakkanum eða pottinum, og gæta þess að brennslan yrði sem jöfnust. Og sjálfsagt hefur smekkur fólks líka verið nokkuð misjafn á því, hvort baunirnar skyldu vera mikið eða lítið brenndar. Og til drýginda var svo auðvitað kaffirótin, kaffibætirinn, eða „exportið“, sem mig minnir að það hafí nú jafnan verið kallað, þessar dökku kaffiplötur, sem unnar munu hafa verið úr rót kaffitrésins, og einmitt er minnst á í vísunni góðu hér að ofan. Rótin var gjaman sett út í uppáhellinguna til að gera kaffið sterkara og um leið drýgja það, því sjálfsagt hefur rótin verið ódýrari en sjálft kaffið. Og þaðan kemur líklega heitið „rótsterkt kaffi“. En það var ekki einu notin af rótinni, því sagt er að á tímum kreppu og fátæklegs vöruúrvals, ekki síst því sem teljast mátti til munaðar, þá hafi stúlkur notað bréfið utan af kaffirótinni, sem var rautt, til að lita kinnar sínar og jafnvel varir. Líklega hefur festan í prentlitunum á pappírnum ekki verið meiri en það að hann hefur smitað auðveldalega. Hvort heilbrigðisyfírvöld í dag myndu mæla með aðferóinni, er svo önnur saga. 1 dag höfum við minna að segja um það hvernig vinnsla kaffisins, sem við kaupum, hefur verið, en segja má að á móti komi allt úrvalið sem í boði er. Kaffi er ekki lengur bara kaffi. Nú heitir það ótal nöfnum, allt eftir því hvaða tegundum er blandað saman, hvaðan það er fengið í heiminum, o. s. frv. Og ég þykist vita að áhrif og saga í kringum kaffið fari minnkandi frá því sem var, auk þess sem það er nú ekki beint talið til heilsudrykkja samkvæmt þekkingu fólks á áhrifum koffins í dag. En engu að síður eiga áreiðanlega ýmsir góðar minningar tengdar bjástrinu í kringum kaffið, brennsluna, mölunina og ánægju fólksins yfir því að fá sér góðan kaffibolla, og langar mig því, svona í lokin á þessum kaffipistli, að hvetja fólk til aö senda okkur hjá HEB minningar sínar um þennan þjóðardrykk, sem stundum hefur verið nefndur svo, og áhrif hans á fólk og umhverfi þess á árum áður. 228 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.