Heima er bezt - 01.04.2007, Qupperneq 45
NDBROT
Átt þú í fórum þínum skemmtilega mynd, t.d.
af atburði, stað, húsum, dýrum eða fólki, sem
gaman væri að birta í Myndbroti? Ef svo er
því ekki að senda okkur hana til birtingar og
leyfa lesendum HEB að njóta hennar líka?
Hér er Katla Aðalsteinsdóttir,
ásamt kettinum sínum, honum
Dropa, sem þótti gott að hjúfra
sig að henni, þá hún var háttuð.
Myndin er tekin haustið
1991, en þá var Katla 5 ára,
en kötturinn 4-5 mánaða.
Foreldrar Kötlu eru þau Sóldís
Stefánsdóttir og Aðalsteinn Svanur
Sigfússon, og búa þau á Akureyri.
Myndina tók Aðalsteinn Svanur
Sigfússon frá Rauóuvík.
Frá Fáskrúðsfirði á síðustu öld.
Leiðrétting vegna greinar í desemberheftinu 2006,
Brot úr ævi merkrar konu
Óskað hefur verið eftir að fram komi eftirfarandi
leiðréttingar varðandi grein Freyju Jónsdóttur, Brot
úr ævi merkrar konu, í desemberhefti Heb, 2006:
Guðmundur var sonur Þorgríms Þorlákssonar og
konu hans Guðrúnar Marteinsdóttur. Þetta var síðara
hjónaband þeirra og áttu þau bæði börn frá fyrra
hjónabandi. Guðmundur var elstur barna þeirra
fæddur 24.12.1892. Systur hans tvœr Halldóra og
Sigurrós voru yngri.
A miðri fyrstu síðu segir:
Eftir stuttan tíma í Gautavík flutti Sigríður til
systur sinnar Guðrúnar Ögmundsdóttur, er þá var
gift Sigurði Einarssyni frá Djúpavogi. Þau fluttu
síðan til Fáskrúðsfjarðar.
Sigríður var þar að mestu uns hún giftist Birni
Björnssyni Hallgrímssonarfrá Stóra - Sandfelli. Þar á
að vera ritað Birni Benediktssyni Hallgrímssonar.
Betri heyrn -
bætt lífsgæði
Lifðu lífinu lifandi og njóttu þess að eiga góð
samskipti við fjölskyldu og vini á efri árunum.
Heima er bezt 237