Hljóðabunga - 01.03.1975, Blaðsíða 4

Hljóðabunga - 01.03.1975, Blaðsíða 4
Jón Jónsson skrnddnri segir ird Fært heíur í letur Guðjón Friðriksson 1. hluti UPPRUNI Ég er fæddur 1890, heiti Jón og er Jóns- son. Foreldrar mínir voru Jón Sigurðsson bóndi á Höfða í Dýrafirði og kona hans Margrét, dóttir Sighvats borgfirðings. Við vorum 7 bræðurnir. Fjórir komust upp svo að þeir giftust. Við erum bara tveir eftir núna, Sighvatur á Höfða og ég. Sigurður og Þórarinn drukknuðu báðir. Sigurður var skotinn niður á stríðsárunum á bát sem hét Pétursey, en Þórarinn drukknaði á em- möstrung, líklega á Arnarfirði. Fólkið mitt var fátækt fólk, bjó á litlum skikum á Höfðajörðinni og þótti gott að hafa að éta ef það var. Á Höfða voru þrír bændur. Þeir voru Sighvatur afi minn, pabbi og annar bóndi utar á túninu, sem hét Jón Þórarinsson. Svo var húsfólk þarna. Það átti kannski 3 til 4 kindur. Margbýlt var á hverjum bæ í Dýrafirði og húsmenn á flestum þeirra. Húsmennirnir áttu kofa utan í túnjaðrinum og bjuggu sjálfstæðu lífi, voru flestir á skakskútum á sumrin og stunduðu útræði á haustin fram að jóla- föstu. SIGHVATUR BORGFIRÐINGUR Sighvatur afi minn var í minna meðal- lagi maður, liðlegur, frekar hnellinn, snagg- aralegur, þegar vel lá á honum, en hvers- dagslega var hann alltaf í skruddum sinum og lét allt ganga fyrir sem að þeim laut. Hann skrifaði tyggjandi og var illa við, ef mikill hávaði var gerður í kringum hann. Við vorum eiginlega eins og lús með saiun, þegar við vorum í nálægð hans nema hann legði allt frá sér, þá var hann hýr og fjör- legur í tali. Ef gestir kornu var hann feikilega gest- risinn og opinn við þá, spurði þá spjör- unum úr og svaraði með fyndni og ýmsu eftir því sem við lá. Hann reyndi að fá eitthvað út úr þeim, sem hann gæti fest á blað. Ég held, að það hafi oft verið tilgang- urinn. En honum lá nú orð til þeirra sumra, þegar þeir voru farnir: „Mikill hlandauli var nú þetta. Það var tóm lygi og þvaður, sem hann var að segja”. Afi minn hafði ýmis orðatiltæki sem hann bjó til sjálfur. Hann hafði margar samlíkingar um grút og hvalþjósur og gjúgur, oft í sambandi við heilaástand fólks, sem honum fannst vera heldur svona heimskt. Hann naut þess að beita þeim. Ég ímynda mér að það komi aldrei sögu- karl af hans tagi meir. Bækurnar voru i kringum hann en húsakynnin léleg. Ef rigndi mikið var hætt við að þekjan læki. Þá voru teknir allir þeir skinnbjórar, sem til voru og áttu að fara í skóskæði, og breidd- ir yfir svo að hripaði út af. Hann fékk lánað- ar bækur sunnan úr Reykjavík í gegnum Jón Þorkelsson og varð hann að hafa sig all- an við að afrita. Einu sinni man ég eftir að hann fékk bók lánaða sem hann sagði að vægi fjórðung, og hann afskrifaði hana frá fyrsta vetrardegi til síðasta með innskotum 4 HLJÓÐABUNGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hljóðabunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.