Hljóðabunga - 01.03.1975, Blaðsíða 11

Hljóðabunga - 01.03.1975, Blaðsíða 11
vítið hann Höfda-Móri segir”. Afi svarar: „Ég fyrirlít svín öll”. Þá var samtalinu lokið og hver fór í sína ótt. Ég held að þetta hafi ekkcrt verið erft. Báðir kenndir. Honum þótti gott i staupinu honum afa. Þegar þeir komu svona áttu þeir alltaf slatta og konm til þess að h)rrga honum. Svo voru menn sem bárust meira á held- ur en hinir og voru eitthvað hetur efnum búnir, vel ldæddir og áttu hesta til að riða á. Þeir kornu kannski þrír og riðu í fleng og beygðu svo heirn að bænum. Þar var stokkið af baki og þá var mikið talað. Já, þetta voru miklir karlar. Einu sinni missti einn þeirra flösku sem var í töskunni fyrir aftan hnakkinn. Hann var fljótur af baki en flaskan var brotin. Botninn var óreglu- lega brotinn og eitthvað eftir i honum. Hann leit á hann, hallar flöskunni til og hellir upp i sig síðasta dropanum, sem var i lögginni. Pabbi og allir nágrannabændurnir í Dýra- firði og vestur í Arnarfjörð og norður eftir töluðu vel og sterkt upp á d: „Hann er að gera nordan og það er harda gardur úti. Fardu upp i skardið og náðu í rollurnar”. Þetta var vestfirska, en var að byrja að leggjast niður. Þá voru menn að lesa ný- tískubækurnar og menn fóru að fara í skóla, sumir fóru í húnaðarskóla, sumir á Flenshorgarskóla og lærðu þá upplestur og framsögn ýmisa. Það var fljótt að smitta. HAFSTEINSÁFALLIÐ Ég hef verið 9 ára, eða á 9. árinu, þegar Hafsteinsáfallið var. Enski togarinn var að toga inn á milli Mýra og Haukadals og þeir drekktu þremur mönnum, saklausum sveitamönnum, sem voru að róa. að honum fyrir sýslumanninn. Þetta voru vinir manns og kunningjar. Við sáum mikið eftir þeim og elskuðum ekki þá sem drápu þá. Það er alveg áreiðanlegt. Togarinn var á fjögurra mílna hraða og hinir höfðu orðið að róa kappróður til að ná honum. Þegar þeir HLJÓÐABUNGA Þeir voru þungir fyrir vestfirðingarnir. koma aftan að skipinu, þá grípa þeir troll- vírana, en hann slakar allt i einu á og setti allt yfir bátinn. Englendingnm fórst þetta mjög illa. Það voru engir tilburðir af þeirra hálfu til að hjarga þangað til kappróandi skekta kom frá Haukadal með byssu. Það var verið að ámæla þeim fyrir klaufaskap- inn að leggja svona vitlaust að, að koma aftan að skipinu, en þeir bara gátu ekki haldið hraða þess. Þetta var enginn vélbát- ur. Hannes Hafstein ætlaði víst að stökkva um borð. Þeir sögðu mér það gamlir klæðskerar, sem unnu með mér á verkstæði á Englandi, og mundu eftir þessu úr blöðum, að enski skipstjórinn hefði verið hurt rekinn frá útgerðarfélaginu í 6 mánuði og verið kom- inn á skip árið eftir. Það vantaði vitni héð- an til að sverja á hann. Annars hefði hann verið hengdur. Nei, hann fékk ekki dóm. Þetta var bara skaðabótaskylt og skaða- bæturnar ekkert, sem heitið gæti. Afi sagði mér einu sinni sögu um Jón 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hljóðabunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.