Hljóðabunga - 01.03.1975, Page 29

Hljóðabunga - 01.03.1975, Page 29
er þó frá því að félögin hafi sýnt nein dauðamerki. — Þvert á móti hafa þau verið í sókn, að vísu dálitið skrikkjótt eins og þessar tölur sýna: FÉLOG: FÉLAGAR: 1946 180 10.000 1952 200 12.546 1964 180 10.873 1974 190 16.000 Starfssemin frá stríðsktkum hefur framar öHu öðru heinst að íþróttum, umf. eru íþróttafélög drcifbýlisins og hafa þannig lagt sinn skerf til byggðastefnunnar. Hlutur UMFl í íslenskri íþróttahreyfingu er nú stór og fer vaxandi. Starfssemi hér- aðssambanda hefur eflst en hvert þeirra heldur héraðsmót á sínu sambandssvæði. Hápunktur íþróttastarfsins eru svo lands- mótin, en þau eru haldin þriðja og fjórða hvert ár. Landsmótin eru umfangsmiklar og glæsi- legar íþróttahátíðir, „Ólympíuleikar ung- mennafélaganna”. Á þessum mótum koma saman ungmennafélagar úr öllum lands- hlutum, kynnast, starfa saman og keppa sín á milli. Þetta eru ekki eingöngu íþrótta- mót, heldur allsherjar ungmennahátíðir og hafa yfirleitt farið fram með miklum menn- ingarbrag. Yfirlýstur tilgangur þeirra er að vera „almennt átak félagsmanna og próf- steinn af starfi sem flestra einstaklinga og gefa þeim tækifæri til að sýna félagslegan þroska og manndóm”. Fyrsta landsmótið var haldið 1909, en eftir 1914 lögðust þau niður fram til 1940 er þau voru endurlífguð. Síðan hafa þau verið haldin óslitið, og verður það næsta á Akranesi 11.-13. júlí í ár. ÁFRAM SKAL HALDIÐ Síðasta áratuginn liefnr hlaupið gróska í ýmsa nýja og gamla þætti ungmenna- starfsins. — Fyrst er að nefna landnræðslustarfið. 1967 fór hópur félaga úr Héraðssamband- inu Skarphéðni með fræ og áburð á Bisk- Frá Landsmóti UMFÍ á Laugarvatni 1968. upstungnaafrétt og sáði þar í dálítinn blett af örfoka landi, en þar er af nógu sliku að taka. Þetta var upphafið að sjálfboðastarfi ungmennafélaganna í þágu landgræðslu. Siðan hafa verið farnar slikar sáningar- ferðir víða um land, og auk þess hafa ung- mennafélagar unnið að melskurði. Þetta verk er mjög i anda hugsjónar ungmenna- félaganna um ræktun lýðs og lands, það er bæði þarft og þroskandi. Annar starfsþáttur sem hefur vaxið mjög að undanförnu er félagsmálaskóli UMFl. I samstarfi við Æskulýðsráð Ríkisins hefur UMFI staðið fyrir umfangsmikilli félags- málafræðslu um allt land, bæði í skólum og á vegum einstakra félaga. Félagsmálanám- skeiðin hafa verkað eins og vítamín- sprauta á allt félagslíf þar sem þau hafa verið haldin, og er síst vanþörf á sliku. UMFl stendur einnig fyrir miklu sumar- búðastarfi fyrir hörn og unglinga en í sumarbúðunum er mikil áhersla lögð á íþróttir og félagsmálafræðslu. Á hyrjunar- stigi er vinnuskóli í Þrastaskógi, þar sem umf. hafa í áratugi stundað skógrækt, og mnn unglingum þar gefast kostur á að vinna skanandi starf í nánum tengslum við náttúruna. — Samskipti UMFl við æskulýðsfélög á Norðurlöndum fara mjög vaxandi, skipst er á íþróttafólki. tekið j)átt í námskeiðum og ráðstefnur haldnar. T.d. hélt UMFl á síðasta ári samnorræna ráðstefnu fyrir unga hændur. HI.JÓÐABUNGA 29

x

Hljóðabunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.