Hljóðabunga - 01.03.1975, Síða 58

Hljóðabunga - 01.03.1975, Síða 58
Á Þingvöllum 17. júní 1944. Á myndinn eru L. G. Dreyfus erindreki Bandaríkjaforseta, Vilhjálmur Þór utanríkisráðherra, Sveinn Björnsson forseti og Björn Ólafsson fjármálaráðherra. Dreyfus kallaði Vilhjálm „hinn mikla Bandaríkjavin” í skýrslu til Hull utanríkisráðherra 21. júní 1944 og taldi að vinátta í garð Bandaríkjanna hefði náð „nýju hámarki á íslandi” (Skírnir 1973). Ríkis- stjórnin var stundum kölluð Coco Cola-stjórnin af því að Björn fjármálaráðherra var umboðsmaður Coca Cola á íslandi Þetta allt leiddi til kreppu í íslensku atvinnulífi og atvinnuleysis. Við urðum háðari og háðari bandarísku fjármagni. Ekki er hægt að sjá annað en þetta hafi verið liður í vel undirbúinni pólitík bandaríkja- manna til að gera íslendinga sér háða og undir- búa jarðveg varanlegrar hersetu, sem var mark- mið þeirra löngu áður en rússagrýlan kom til eins og áður sagði. Sumum kann að þykja þetta ótrúleg saga og brjóta í bága við þær hug- myndir sem þeir hafa áður gert sér um Mars- hallaðstoðina og haldið hefur verið að þeim af miklu kappi. En á sviði alþjóðasamskipta hefur góðmennskan aldrei gilt. Þar er rekin stálhörð hagsmunapólitík. Ekki þarf mikið hugmynda- flug til að siá tengsl Marshallaðstoðarinnar við þá atburði sem á eftir komu. Þar helst í hendur orsök og afleiðing. Fyrst kom NATO-samning- urinn, svo herinn. Árið 1951 skapaðist mikil vinna við hernaðarmannvirki á Keflavíkurflug- velli og „bjargaði” hún atvinnuástandinu. Herinn var — í augum margra — hinn mikli bjarg- vættur. Snjöll aðferð í hvívetna! Árið 1946 neituðu íslendingar algjörlega að fallast á bandarískar herstöðvar til 99 ára. Ýmsir stjórnmálamenn, svo sem Gunnar Thor- oddsen og Sigurður Bjarnason frá Vigur, héldu þá hjartnæmar þjóðernisræður og kváðu aldrei koma til mála að hafa hér her á friðartímum. Nokkrum árum síðar hélt Sigurbjörn Einarsson síðar biskup ræðu með svipuðum sjónarmiðum og Gunnar og Sigurður fyrr. Nú brá svo við að Morgunblaðið kallaði sr. Sigurbjörn þjóðhættu- legan kommúnista og hóf miklar ofsóknir gegn 58 HLJÓÐABUNGA

x

Hljóðabunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.