Bænavikan - 17.11.1956, Qupperneq 4
andi orð kosta ekkert meira en kuldaleg og
kjarkdrepandi orð. Bitur orð særa.15
Haltu aítur af hverju fljótfærnisorði, sem er
komið fram á varir þínar. Nemdu staðar og
hugsaðu um hvaða áhrif hryssingsleg og ó-
þolinmóð orð munu hafa, áður en þú lætur þau
frá þér fara. Minnztu þess, að börnin eru fljót
að taka eftir blæ raddarinnar. Minnztu þess
einnig, að englarnir heyra orðin, sem þú tal-
ar. Þú ert skoðunarspil heimsins, engla og
manna.16
Kenndu barninu þínu að tala á vingjarnleg-
an hátt, svo að orð þess veki gleði og birtu.
Englarnir gista ekki það heimili, þar sem ó-
eining ríkir. Iðka guðsótta á heimilinu. Undir-
búðu sjálfan þig og börn þín fyrir inngöngu
í borg Guðs. Englarnir munu hjálpa þér til
þessa. Satan mun freista þin, en gefstu ekki
upp og láttu ekkert það orð frá þér fara, sem
Satan getur notað sem ákæru gegn þér.
Ákvörðun hvers fjölskyldumeðlims ætti að
að vera þannig: „Ég vil vera kristinn, því að
í skóla þessa jarðlífs verð ég að móta þá lynd-
iseinkunn, sem gefur mér aögang að hærri
bekk og að skóla himinsins. Ég verð að koma
fram við aðra, eins og ég vil að aðrir komi
fram við mig.“ Reynið að gera heimilislífið
eins líkt himninum og mögulegt er.17
Við getum ekki vegsamað Guð með því að
lifa í andstöðu við lögmál lífsins. Hjartað er
ekki helgað Guði sé samtímis látið undan
lostafullum hvötum. Sýktur líkami og sljófguð
greind, sem stöðug undanlátssemi við skað-
samlegar venjur kemur til leiðar, útilokar
helgun líkama og sálar.18
Við ættum að íhuga orð postulans, er hann
hvetur bræðurna til að frambera líkami sína
sem „lifandi Guði þóknanlega fórn.“ Þetta er
sönn helgun. Hún er ekki aðeins kennisetning,
geðshræring eða orðin tóm, heldur lifandi og
virk meginregla, sem nær til hins daglega
lífs. Hún útheimtir það að allar okkar venjur
í sambandi við mat, drykk og klæðnað, séu
þannig að þær stuðli að líkamlegu, andlegu
og siðferðislegu heilbrigði, svo að við getum
framborið Drottni líkama okkar — ekki sem
fórn, er rangar lífsvenjur hafa spillt, heldur
— sem „lifandi Guði þóknanleg fórn.“
Enginn sem segist vera kristinn, ætti að
vera hirðulaus um líkamlegt heilbrigði eða
telja sjálfum sér trú um að bindindisleysi sé
ekki syndsamlegt og muni ekki hafa nein áhrif
á andlegt líf hans. Það er mjög náið samband
milli sálar og líkama. Andlegt atgervi og
aukning þess eða hnignun er háð líkamlegum
venjum. Ofát góðrar fæðu mun orska sljófgað
ásigkomulag siðferðisvitundarinnar. Og sé
fæðan ekki heilsusamleg munu áhrifin verða
enn skaðsamlegri. Sérhver lífsvenja, sem ekki
eykur á hreysti mannlegra líffæra, dregur úr
hinum æðri og göfugri hæfileikum. Slæmar
venjur í mat og drykk orsaka villu í hugsun
og atferli. Eftirlátssemi við matarlystina eyk-
ur dýrslegar hvatir og rýrir andlega hæfileika
mannsins.10
Lærdómsrík lexía.
Það má draga lærdómsríka lexíu af hinum
sláandi mun á lunderni Jóhannesar og Júdas-
ar. Jóhannes var lifandi dæmi um helgun.
Hins vegar hafði Júdas á sér yfirskin guð-
hræðslunnar um leið og lunderni hans var
miklu fremur djöfullegt en guðlegt. Hann
sagðist vera lærisveinn Krists, en afneitaði
honum með orðum sínum og atferli.
Júdas fékk sömu tækifærin til að læra og
feta í fótspor Meistarans og Jóhannes. Hann
hlýddi á lexíur Krists og lunderni hans hefði
átt að umbreytast fyrir náð Guðs, en meðan
Jóhannes reyndi að vera á verði gegn eigin
mistökum og leitaðist við að líkjast Kristi,
misbauð Júdas samvizku sinni, féll fyrir freist-
ingu og vandi sig á óheiðarleik, sem um-
breyttu honum í mynd Satans.
Þessir tveir lærisveinar eru táknmynd hins
kristna heims. Allir segjast vera fylgjendur
Krists, en annar flokkurinn framgengur í lítil-
læti og hógværð og lærir af Jesú, hinn flokk-
urinn sýnir að hann er ekki gjörandi Orðsins,
heldur aðeins heyrandi. Annar flokkurinn er
helgaður með sannleikanum; hinn þekkir ekki
umbreytandi mátt guðlegrar náðar. Hinn fyrr-
nefndi deyr sjálfum sér daglega og sigrast á
synd. Hinn síðarnefndi lætur undan eigin
hvötum og gerist hanbendi Satans.20
Að vera helgaður þýðir að vera hluttaki guð-
legs eðlis, öðlast hugarfar Jesú og læra stöð-
ugt í skóla hans. Við getum ekki umbreytt
okkur sjálfum í eigin mætti, það er Heilagur
andi, huggarinn, sem Jesús sagði, að hann