Bænavikan - 17.11.1956, Page 5

Bænavikan - 17.11.1956, Page 5
mundi senda heiminum, er breytir lunderni okkar í mynd Krists, og þegar þessi breyting helur átt sér stað, endurspeglum við eins og spegill dýrð Drottins. Þ. e. lunderni þess, sem horfir þannig á Krist, verður svo líkt lunderni Krists, að hann verður eins og spegill, sem endurspeglar nákvæma mynd Krists. Án þess að við tökum eftir því, breytumst við dag frá degi úr okkar eigin mynd í líkingu Krists og öðlumst lunderni hans. Þannig vöxum við í Kristi og endurspeglum mynd hans ósjálf- rátt.21 Miklir möguleikar og háleitir og göfugir hæfileikar standa okkur til boða. Helgunin táknar fullkomin kærleika, fullkomna hlýðni og algjöra undirgefni við Guðs vilja, hún táknar það að við gefumst honum að fullu og öllu. Hún táknar það að vera hreinn og óeigin- gjarn, án bletts eða hrukku. Frá eilífum tíðum hefur Guð útvalið okk- ur til þess að vera hans börn. Hann gaf son sinn í dauðann okkar vegna, svo að við gætum helgazt fyrir náð hans. Hann ætlazt til að við vöxum stöðugt í þekkingu og dygð. Lögmál hans er bergmál eigin raddar, sem segir: „Komið hærra. Verið heilög.“ Á hverjum degi getum við komizt lengra í því að fullkomna kristilegt lunderni í okkur.22 1. The Sanctified Life, bls. 7. 2. Testimonies for the Church, 8 b. bls. 312. 313. 3. Review and Herald, 26. júní 1900. 4. Sama, 12. apríl 1892. 5. Sama, 31. október 1893. 6. Sama, 18. febrúar 1904. 7. Steps to Christ, bls. 69. 8. Gospel Workers, bls. 254. 258. 9. Education, bls. 257. 10. Review and Herald, 15. október 1908. 11. Sama, 28. apríl 1910. 12. The Sancti fied Life, bls. 67. 68. 13. Messages to Young People, bls. 15. 16. 14. Signs of the Times, 17. febrúar 1904. 15. Review and Herald, 28. janúar 1904. 16. Signs of the Times, 17. febrúar 1904. 17. Review and Herald, 28. janúar 1904. 18. Health Reformer, marz 1878. 19. Review and Herald, 25. janúar 1881. 20. The Sanctafied Life, bls. 44. 21. Review and Herald, 2. janúar 1913. 22. Signs of the Times, 28. maí 1902.

x

Bænavikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.