Bænavikan - 17.11.1956, Blaðsíða 12

Bænavikan - 17.11.1956, Blaðsíða 12
— 12 — Arabíu, sem hingað til hefur neitað kristni- boðum um inngöngu í land sitt. Þrátt fyrir þetta hafa tíu þúsund manns heyrt Boðskap- inn gegnum vikulegar útvarpssendingar frá Aden og fyrir atbeina víðtækrar útbreiðslu bókmennta okkar, sem eru sendar inn í landið með hægfara kaupmannalestum. „The Voice of Prophecy“ útvarpsþátturinn hefur haft ótrúlega mikil áhrif. Rúml. 250.000 manns hafa látið innrita sig í Biblíubréfaskól- ann og nærri því 5000 hafa lokið námi. Nú er dagur tækifæranna í Mið-Austurlöndum.“ Næst skulum við hlýða á F. A. Mote, for- mann Austurlanda-Divisionarinnar. „Ég heilsa trúsystkinum mínum alls staðar í heiminum! Við höfum séð þúsundir sálna skírðar í þess- ari Division á síðasta ári. Náðst hefur til nýrra ættflokka í fjöllum Suður-Filippseyja-union- inni; við höfum verið vitni að framgangi starfsins meðal frumstæðra manna í Viet Nam. Margir meðlimir hafa bætzt við söfnuð- inn á eynni Formósu. Verkinu miðar vel áfram í vesturhluta Nýju-Guineu og við væntum þess að geta brátt komizt inn í Cambodia í Indó- Kína. Um margra ára skeið hefur heimur Múham- eðstrúarinnar verið eins og óvinnandi og rammger kastali. En það lítur út fyrir að nú hafi Boðskapurinn að lokum fundið hljóm- grunn í hjörtum Múhameðstrúarmanna. Fyrir stuttu síðan voru sjö fyrrverandi Múhameðs- trúarmenn skírðir á sama staðnum á eynni Java, fimm á öðrum stað og átta á enn öðrum. Á kristniboðssvæði einu í Indónesíu hafa 49 Múhameðstrúarmenn unnizt með Boðskapnum á síðastliðnu ári. Fyrir ekki alllöngu vannst innfæddur höfð- ingi, sem hét Datu Panonggo af Bilaan-ætt- flokknum í fjalllendi Mindano, með Sannleik- anum frá algjörum heiðindóm. Hin unga kona hans, Odanding, tók einnig á móti Sannleikan- um. Áður en hann tók skírn lét hann af löstum sínum, lét 26 af konum sínum frá sér fara og kvæntist löglega þeirri, sem einnig tók skírn. Þau eru nú mjög hamingjusöm og boða ætt- flokki sínum í f jöllunum trú sína. Á hverju ári skírum við u. þ. b. 9000 sálir í þessari Division. Fyrir 25 árum var meðlima- tala okkur 15,234. Nú er hún rúmlega 81,000. Biðjið fyrir okkur og að starfið verði til lykta leitt í Austurlöndum." Hér kemur R. S. Watts, formaður Suður- Afríku Divisionarinnar. „Ég heilsa ykkur, bræður og systur! Tala skírðra meðlima í Suðuru-Afríku Divisioninni er nú komin upp í 134.043 og er það nærri því fjórtán prósent af meðlimatölu Sjöunda-dags Aðventista í öll- um heiminum. Meðlimatala hvíldardagsskóla okkar er komin yfir 270.000. Síðustu skýrslur gefa til kynna, að nýr meðlimur sé skírður á 28. mínútna fresti árið um kring hér í Suður- Afríku. Þetta jafngildir heilum söfnuði með rúmlega 50 skírðum meðlimum á degi hverjum og verður samtals 18,505 meðl. á ári. „Fyrir stuttu síðan var nýtt kristniboð und- ir afríkanskri stjórn stofnað meðal Mbulu- þjóðflokksins í Tanganyika. Þessi sérkenni- legi þjóðflokkur byggði beinlínis heimili sín neðanjarðar, til þess að verjast árásum Masai- þjóðflokksins, sem á undanförnum árum hefur brennt niður heimili Mbuluanna og drepið alla þá, sem reynt hafa að flýja. Hinir dyggu bók- söluprédikarar okkar hafa farið til þessara villtu landsvæða og útrýmt fordómum, svo að kleift væri að stofna fyrstu kristniboðsstöðina meðal þessa þjóðflokks. Á mörgum stöðum sækja starfsmenn okkar fram í áttina til ó- numdra svæða, og við væntum þess, að slíkt beri árangur. Þannig miðar verkinu áfram í Afríku.“ W. E. Murry, formaður Suður-Ameríku Divisionarinnar, segir eftirfarandi um „álfu tækifæranna": „Aðventhreyfingin í Suður- Ameríku heldur áfram með vaxandi hraða. Áhrif hennar aukast frá ári til árs. Þar eð Boðskapurinn hefur aldrei verið prédikaður víða í þessari álfu, leggjum við allt kapp á að ná til þessara staða. I Norður-Brasilíu hafa bræðurnir hafið nýtt starf meðal Indíána. Þeir segja frá því að Indíánahöfðingi, sem tók á móti Boðskapnum, hafi strax farið að kenna höfðingja nágranna- flokksins hin nýju trúarbrögð. Sá síðarnefndi tók einnig á móti Boðskapnum. Síðan fóru þeir báðir að kenna þegnum sínum, og nýlega var fyrsti hópurinn, 15 manns, skírður meðal þess- ara Indíána í frumskógum Brasilíu. 1 allri Divisioninni miðar verkinu vel áfram. Meðlimatalan eykst stöðugt í Inka-unioninni. I byrjun ársins 1956 settu leiðtogarnir í Suður- Ameríku sér það takmark, að skíra 12,000 sálir á árinu. Ef þessu takmarki verður náð,

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.