Bænavikan - 17.11.1956, Síða 18
— 18 —
lyndiseinkunn þess og yki á hamingju þess,
sagði hann:
„Það að Guði var helguð tíund alls gróða,
hvort heldur af akuryrkju, aldinyrkju, kvik-
fjárrækt eða vinnu hugar og handar; og helg-
un annarrar tíundar hinum fátæku til viður-
væris og til góðgerðastarfsemi, gerði það að
verkum að fólkið gleymdi því aldrei, að Guð
er upphafsmaður alls og að það væri því sjálfu
til blessunar að hljóta þau forréttindi að vera
tæki í hans hendi öðrum til heilla. Þessi fyrir
mæli voru vel til þess fallin að eyða allri sín-
girni, þroska umburðarlyndi og göfga lyndis-
einkunnina." — Education, bls. 44.
Það hefur blessun í för með sér að styrkja
málefni Guðs af heilum hug og sjálfviljug-
lega. Það er athyglisvert hve Guð heiðrar
trú þeirra, sem gera sáttmála við hann með
því að fórna. Hér er stutt saga um kristni-
boðslækni, sem hefur helgað Guði líf sitt og
hæfileika. Ég endursegi hana eins og hann
sagði hana afríkönskum samverkamönnum
sínum á nýafstöðnum fundi. „Þegar faðir
minn dó,“ sagði hann, „lét hann mér eftir 19
nautgripi, og vegna þess að ég hafði ekki
sjálfur unnið fyrir þessum nautgripum, fannst
mér að ég yrði að gefa mestan hluta þeirra til
málefnis Guðs. Ég gaf 13 þeirra og ég var
glaður. Þegar ég kom aftur heim til mín
nokkrum árum síðar, bjóst ég við að finna
þá 6 nautgripi, sem ég hafði skilið þar eftir,
en ég fann 27. Guð hafði gert mig ríkari en
þá, sem ekkert gáfu til starfs hans. Og nú á
ég fleiri nautgripi, sem ég get gefið Guði.“
Það er þessi einfalda trú, sem blómgast og
vex í jarðvegi kristilegrar óeigingirni og í
andrúmslofti öruggrar vonar um raunveruleik
hins komandi guðsríkis, sem við þörfnumst
í dag. Iive hamingjusamir eru þeir ekki, sem
gefa og fórna og útrýma hverri tilhneigingi i
til sjálfselsku úr hjarta sínu.
En það sem við ætlum að gefa, verðum við
að gefa strax. Það er sannfæring margra hugs-
andi kristniboða og annarra, að tíminn sem
eítir sé til að starfa fyrir þá sem ekki eru
kristnir í þessum heimi, sé mjög stuttur. Ef
einhver breyting á sér ekki stað í Kína, er
oroið of seint að gefa þar. Sumir álíta að
dagar kristniboðsins í Indlandi og víðar í Aust-
urlöndum séu þegar taldir. Nýlega var dregið
í efa, að það yrði hægt að halda kristniboði
áfram í Afríku meira en í 10 ár. Það er ekki
okkar „að vita tíma eða tíðir, sem faðirinn
setti af sjálfs síns valdi.“ (Post. 1, 7.), en það
er augljóst, að ef við getum gefið eitthvað til
Guðs málefnis, verðum við að gera það fljótt.
Það er ekki víst, að allir kristniboðar verði
þvingaðir til að hverfa frá öllum löndum eins
og kristniboðarnir í Kína, en verið getur að
dregið verði úr virkri starfsemi þeirra eða
algjörlega heft. Hve hræðilegt myndi það ekki
vera, ef við vildum gefa örlátlega af eigum
okkar, en komumst að raun um að ekki væri
hægt að nota gjafir okkar til þess að hjálpa
þeim sálum, sem eru keyptar með blóði Krists,
vegna þess að dyrum tækifæranna hafi verið
lokað. Þetta er ekki tóm ímyndun, heldur bráð-
ur og yfirvofandi möguleiki. Þess vegna ættum
við ekki að draga það að gefa nú, ef við finn-
um að Guð ætlast til þess.
Það sem á við um kristniboðslöndin má
einnig heimfæra viðvíkjandi tíund og fórnar-
gjöfum til starfsins í heimalöndunum. Þó að
gjafirnar innan samtaka okkar séu langtum
meiri en hjá öðrum trúflokkum, ættum við
ekki að telja sjálfum okkur trú um að við
gerum nóg. Reyndin er önnur, því „hafi nokkru
sinni verið tími til fónargjafa, þá er það nú.“
Testimonies, 5. b., bls. 450.
Þessi hreyfing, sem myndaðist vegna fórna
og starfs, er krafðist heilsu og krafta frum-
herjanna, mun enda á sama hátt. Kallið um
fórnargjafir og trúmennsku í tíundagreiðsl-
um mun hljóma hærra eftir því sem endirinn
nálgast. Þessum alvarlegu orðum er beint til
okkar: „Ég sá að fómin jókst ekki heldur
minnkaði og þvarr.“ — Early Writings bls. 57.
— Og ennfremur erum við áminnt með þessum
orðum:
„Þegar allir sýna trúmennsku í því að gefa
Guði aftur, það sem honum ber með tíund og
gjöfum, mun heimurinn fá tækifæri til að
hlýða á boðskap hins þriðja engils. Ef að
hjörtu Guðs barna væru fyllt kærleika til
Krists og hver safnaðarmeðlimur haldinn af
anda sjálfsafneitunar, og ef að allir sýndu
fullkominn heiðarleika, myndi ekki skorta fé
til kristniboðsstarfa heima eða erlendis. Féð
mundi margfaldast, ótal möguleikar skapast
og við mundum fá tækifæri til að hagnýta
þessa möguleika. Hefði áformi Guðs verið
fylgt af fólki hans, í því að veita heiminum
boðskap náðarinnar, myndi Kristur vera kom-
inn til jarðarinnar fyrir löngu síðan og hinir