Bænavikan - 17.11.1956, Page 24

Bænavikan - 17.11.1956, Page 24
— 24 — Lestur fyrir fimmtudaginn 22. nóv. 1956. „Gangið út úr henni — mitt fólk.“ EFTIR C. GIDLUND. Þarfnast aðventfólkið slíkrar hvatningar á okkar dögum? Hefur hinn síðasti söfnuður færzt nær Kristi eða heiminum eftir hundrað ára eyðimerkurgöngu, allt síðan að þessu fólki var trúað fyrir hinu undursamlega ljósi og sannleika aðventvonarinnar? Erum við farin að kunna vel við okkur í þessum heimi? Er hætta á að heimshyggja læðist að okkur án þess að við komum auga á hættuna og forð- umst hana? Svo lengi sem „leyndarráð Guðs er ekki fullkomnað“, hefur fólk Guðs ætlunarverk að framkvæma í þessum heimi. Starf okkar krefst þess að við séum mitt í hinum iðandi mann- grúa. Við eigum ekki að lifa sem einsetumenn eða einangra okkur eins og munkar í klaustri. Heimurinn þarfnast okkar, — hvers trúandi manns og konu, bæði ungra og gamalla. „Eins og faðirinn hefir sent mig, eins sendi ég líka yður.“ Jóh. 20, 21. Á þessum tíma „reiði Guðs“, er það hlutverk okkar að vera boðberar Krists og vara heiminn við komandi dómi. Og við megum ekki bregðast þessu ætlunarverki. Síðan syndin kom inn í heiminn „liggur allur heimurinn í hinum vonda“. 1. Jóh. 5, 19. Og máttur hins illa eflist og verður hættulegri því meir sem endirin nálgast. Óvinurinn leit- ast við að ánetja mennina, og sé það mögulegt, mun hann einnig ánetja fólk Guðs og leiða það í villu. Áður fyrr tókst honum ekki að eyðileggja söfnuðinn með því að beita of- sóknum, misþyrmingum og dauða, svo að hann breytti um herbragð. Einföldum kyrtli hins auðmjúka Nazarea var varpað frá sér og pur- puri og skarlat komu í stað hans. Kirkjan varð vinsæl og ávann sér virðingu í heiminum, þar til kirkja og ríki gerðu með sér vanheilagt sambmd. Ekki „af heiminum“. Það er mikill munur á því að vera „í heim- inum“ og vera „af heiminum“. Enginn vissi þetta betur en Kristur. Þessvegna dró hann markalínu milli fólks Guðs og fólks þessa heims. Bæði hveiti og hafrar vaxa í sama akri. Hið fyrra táknar líf, hið síðara dauða, og þó fær hvorttveggja næringu úr sama jarðvegi, — jafnmikið af sól og regni. Það er sæðið sem gerir allan muninn. „Ég hefi gefið þeim orð þitt, og heimurinn hefur hatað þá, af því þeir heyra ekki heiminum til, eins og ég heyri ekki heiminum til.“ Jóh. 17, 14. Það er orðið sem greinir á milli þeirra, sem eru í heiminum og hinna, sem heyra heiminum til. „Ekki bið ég, að þú takir þá úr heiminum, heldur að þú varðveitir þá frá illu.“ Jóh. 17, 15. Það er engin furða þó að Jesús biðji þannig fyrir lærisveinum sínum hér á jörðu, því að „háttur þessa heims“ komst inn í söfnuð Guðs á margan hátt og útrýmdi „seltunni“, sem á að finnast í hverjum kristnum manni og konu. Við höfum náð því stigi, að við þurfum ekki einu sinni að fara að heiman til þess að leita heimsins og skemmtana hans. Heimurinn í dag kemur inn í heimilið, þegar meðlimir þess, samkvæmt hætti síns tíma, leyfa heimslegum bókmenntum, útvarpi, kvikmyndum og sjón- varpi að komast inn. Allt þetta getur verið mjög gagnlegt sé það notað í þjónustu Guðs til þess að færa því fólki boðskap hjálpræðis- ins, sem ekki verður náð til persónulega. Þess- ar uppgötvanir geta verið góðar og undursam- legar í sjálfu sér. Þær hafa eytt fjarlægðum milli álfa og landa,, en þær geta orðið hættu- legir morðingjar og ræningjar, ef þeim er leyft að verða til þess að synd og freistingar heimsins komist inn í heimili okkar. Dýrmætum tíma til bæna, íhugunar og

x

Bænavikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.