Bænavikan - 17.11.1956, Page 25

Bænavikan - 17.11.1956, Page 25
— 25 — Biblíulesturs er glatað, þegar við stöndum ekki vörð við dyr helgidóms sálna okkar og leyfum áhrifum þessa heims að komast inn í heimili okkar með hinu ritaða máli og eftir öldum ljósvakans, sem skilja aðeins tómleikakennd eftir í sálinni. Við gætum vel að jarðneskum verðmætum, sem eru í eigu okkar. Við mynd- um ekki opna dyrnar fyrir þjófum og ræningj- um, en hvernig gætum við að andlegum verð- mætum okkar? Erum við eins árvökur í því að gæta þess, sem „er langt um dýrmætara en forgengilegt gull“? (1. Pét. 1, 7.) Hættir okk- ur við að halda, að við getum farið eins nærri heiminum og mögulegt er, án þess að drukkna algjörlega í blekkingum hans? Ættum við ekki fremur að reyna að forðast hið illa og halda okkur utan við rotnun heimsins, sem er eins og meinsemd, er jafnvel leiðir til dauða? Postulinn Jóhannes segir: „Elskið ekki heiminn, ekki heldur þá hluti, sem í heiminum eru.“ 1. Jóh. 2, 15. Það sem við elskum, viljum við hafa nærri okkur. Þjónn Drottins segir: „Mér var sýnt að kærleikurinn til heimsins kæmi að verulegu leyti í stað kærleikans til Guðs. .. . Andleg verðmæti eru lítils metin og ekki eftirsótt; því að ágóðafýsnin hefur skyggt á hin himnesku verðmæti. .. . Gerið saman- burð á hinum áköfu tilraunum manna til að öðlast veraldleg gæði, og á hinum veiklulegu og gagnslausu tilraunum til að öðlast andleg og himnesk verðmæti. Það er ekkert undarlegt, þó að við finnum svo lítið til hinna upplýsandi áhrifa hins himneska helgidóms. Þrár okkar beinast ekki í þá átt, þær bindast að mestu við jarðneskan ávinning. Við sækjumst eftir veraldlegum hlutum og vanrækjum hina eilífu.“ Testimon- ies, 2. b. bls. 183, 184. I Jóh. 12, 43. lesum við: „Því að þeir elskuðu lofstír manna meira en dýrð Guðs.“ Hve oft hefur ekki heimshyggja laumazt inn í söfnuð Guðs sem afleiðing þess, hve mjög er sótzt eftir lofstír manna! 1 annríki okkar við það að virða nágranna okkar og eignir þeirra fyrir okkur og í tilraunum okkar að vera ekki ,,síðri“ en þeir, gleymum við auðveldlega ætlunarverki okkar. Hinn kristni verður alltaf að hegða sér og klæða sig þannig, að það sé ekki ríki Guðs til vanvirðu, heldur þvert á rnóti skapi traust og virðingu meðal manna. í Vitnisburðunum er okkur veitt eftirfarandi leiðbeining: „Trú okkar, sé hún útfærð, mun leiða okkur til að vera svo látlaus í klæðaburði og svo áhuga- söm fyrir því að vinna góðverk, að eftir því sé tekið. En þegar við glötum smekk okkar fyrir reglu og snyrtimennsku í klæðaburði, föllum við raunverulega frá sannleikanum, því að sannleikurinn kemur aldrei afturför til leiðar, heldur framför. Vantrúarmenn líta á það sem hnignun, að halda hvíldardaginn heilagan, og ef við sýnum vanrækslu í klæðaburði, erum gróf og óháttvís í framkomu, styrkjast þeir enn betur í þeirri trú.“ Ef heimurinn hefur hentuga, látlausa og heilsusamlega klæðatízku á boðstólnum, mun það ekki breyta afstöðu okkar til Guðs eða heimsins þótt við fylgjum henni. Hinir kristnu ættu að fylgja Kristi og klæða sig þannig, að það samræmist orði Guðs, þeir ættu að forðast allar öfgar.“ Þetta eru skynsamlegar reglur, sem eru þess virði að eftir þeim sé farið. Við ættum ekki að vekja athygli á okkur eða orsaka ógeð manna vegna ytra útlits okkar, heldur láta skraut okkar vera „hinn hulda mann hjartans í ófor- gengilegum búningi hógværs og kyrrláts anda, sem dýrmætur er í augum Guðs.“ 1. Pét. 3, 4. Drottinn beindi eftirfarandi spurningu að hinum foma ísrael, sem hafði allan hugann við heimslega hluti: „Hví reiðið þér silfur fyrir það, sem ekki er brauð, og gróða yðar fyrir það, sem ekki er til saðnings?" Og síðan veitti hann þeim þessa ráðleggingu: „Hlýðið á mig, þá skuluð þér fá gott að eta og sálir yðar gæða sér á feiti. Hneigið eyru yðar og komið til mín, heyrið, svo að sálir yðar megi lifna við.“ Jes. 55, 2. 3. Hvemig er þetta okkar á meðal? Er hætta á því að við missum trúarlegan áhuga fyrir þeim boðskap, sem við erum köll- uð til að flytja? Erum við að glata kærleik- anum til Guðs orðs? Hve miklum tíma verjum við í samfélagi við það lifandi orð, sem er fært um að veita nýju lífi inn í sálir okkar? „Við eigum of annríkt," er jafnan viðkvæðið. En við eigum ekki of annríkt fyrir það, „sem ekki er brauð“, og fyrir það, sem ekki getur fullnægt þörf sálarinnar. Á sama hátt og heimshyggjan verkar á ein- staklinginn og veikir trú hans og áhuga, mun hún einnig verka á skóla okkar og stofnanir, svo að ljósið, sem ætti að berast frá þeim, daprast. „Því að hvað mun það stoða manninn (eða stofnunina), þótt hann eignist allan

x

Bænavikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.