Heimili og skóli - 01.06.1950, Síða 6

Heimili og skóli - 01.06.1950, Síða 6
50 HEIMILI OG SKÓLI öllum menningarþjóðfélögum. Höf- uðtæki skólanna, til að mennta nem- endurna, eru bækurnar. Þær eru einn- ig ómissandi öllum þeim, er eitthvað vilja menntast. En bækurnar, þótt þykkar séu og margar, rúma þó svo ó- trúlega lítið af allri þeirri fjölbreytni, öllum þeim viðfangsefnum, öllum þeim tækifærum til menntunar og þroska, sem lífið sjálft hefur að bjóða. Tökum nokkra nemendur og lokum þá inni í skóla svo árum skiptir, en leyfum þeim ekki að kynnast lífinu fyrir utan. Þessir nemendur myndu verða mjög menntunarsnauðir, þótt við fengjum þeim liina fullkomnustu og færustu kennara, sem völ væri á. Svona er þáttur hins starfandi og streymandi lífs mikill á mannanna börn. En er nú ekki, þótt öllum öfg- um sé sleppt, nokkur hætta á, að börn og unglingar, sem dvelja í skólum samfleytt í 8 og allt upp í 20 ár verði of mjög mótuð af þessu tiltölulega þrönga umhverfi, og það á mesta vaxtar- og mótunarskeiði lífsins? Mér finnst það þess vert, að við gerum að minnsta kosti ráð fyrir þeim mögu- leika. Jafnvel við, kennararnir, meg- um vara okkur að stirðna ekki, verða þröngsýnir og einsýnir. Það er góður og dýrmætur hæfileiki að geta gert sig að barni meðal barna. En það er ekki æskilegt, að við verðum barna- legir að dómgreind og mati á verð- mætum. Kennarar, sem lifa og hrær- ast í því að kenna litlum börnum lestur, skrift og reikning, hljóta að vera á stöðugum verði með að gera þetta, svo mikilvægt sem það þó er, ekki að aðalatriði í lífi sínu eða nem- endanna. II. íslenzk seinni tíma skólasaga er stutt. Við höfum hina síðustu áratugi baðað okkur í skini síaukinnar skóla- menntunar. Við höfum notið gæða hennar, en ekki enn áttað okkur á hugsanlegum annmörkum hennar. Það er skemmtilegt að geta kostað alla unglinga landsins í skóla. Það er skemmtilegt að geta bent á það, að við eigum líklega hlutfallslega fleiri stúdenta en nokkur önnur þjóð, en þetta verður þó ekki eins skemmti- legt, þegar við á sama tíma verðum þeirrar staðreyndar vör, að sveitirnar eru að tæmast af ungu fólki, sem flýr ræktunarstörfin. Það væri ekki sanngjarnt að skrifa þessa óhamingju alla á reikning skól- anna, en þeir eiga þó í því sinn óbeina þátt. Ég álít t. d., að héraðsskólarnir hafi brugðizt vonum manna í þessu efni. Ef segja má, að þeir hafi átt eitthvert eitt höfuð hlutverk, auk þess að veita almenna menntun, hafi það verið það að tengja æskumenn sveitanna við átthaga sína, vekja hjá þeim ræktun- arhug og átthagaást. Þetta hefur ekki tekizt, eins og vonir stóðu til, og með- al annars vegna þéss, að þeir hafa fyrst og fremst verið venjulegir bók- námsskólar. En ég kem ef til vill að þessu seinna. Sérhæfnin er vafalaust nauðsynleg í nútímaþjóðfélagi, en hún er hættu- leg persónulegum þroska. Langt skóla- nám er nokkurs konar sérhæfni. N em- endur verða að einbeita allri orku sinni og áhuga í eina átt, að ná góðum árangri í bóklegum fræðum. Hug- kvæmni og ímyndunarafl, hin andlega,

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.