Heimili og skóli - 01.06.1950, Blaðsíða 8

Heimili og skóli - 01.06.1950, Blaðsíða 8
52 HEIMILI OG SKÓLI festir þá skoðun, eru landsprófin svonefndu, sem eiga að vera eins kon- ar dyr að hinu fyrirheitna landi lang- skólanámsins, þar hygg ég tvímæla- laust, að vera muni skólaframkvæmdir á villugötum. Úr þeirri happasmiðju hljóta að koma gripir, sem eru alltof líkir hverjir öðrum, en þetta væri annars nægilegt efni í heilt erindi. Við skulum heldur ekki fela fyrir okkur þá hættu, sem alltaf vofir yfir skólunum, að þeir geta verið, og eru að einhverju leyti, heimkynni múg- hugsunar. Ekki fyrir tilverknað neinna sérstakra aðila, heldur blátt áfram samkvæmt eðli sínu. Og það var þetta, sem hinn látni, þjóðkunni skólamaður, Sigurður Guðmundsson, var að berjast á móti alla sína löngu skólatíð. Andlegt sjálfstæði, sterkan persónuleika og heilbrigða dóm- greind mat hann meir og hlúði meir að en flestu öðru í fari nemenda sinna. Slík afstaða er alltaf einkenni mikilla og víðsýnna skólamanna. Við lifum á tímum mikilla átaka í félags- málum og stjórnmálum. Klíkur og flokkar lifa eins og blómi í eggi. En eins og sagt var um púkana í þjóðsög- unum, að þeir fitnuðu mest af illum munnsöfnuði, svo má segja um þessi hjú, að þau lifi að verulegu leyti á þröngsýni, dómgreindarleysi og múg- mennsku. Skólarnir geta ekki tekið afstöðu til flokka, en það er ein af höfuðskyldum þeirra að rækta and- legt sjálfstæði nemendanna, kenna þeim að hugsa sjálfstætt. Það er meiri menntun en flest annað. Og ekki get ég að því gert, að mér verður oft ó- notalega við, er ég sá það á prenti, eða heyri, að drengir, sem eru ný- komnir úr barnaskólum, skuli vera orðnir formenn og leiðtogar í póli- tískurn félögum. Stjórnmál eru flók- in viðfangsefni, og það er ekkert á móti því að byrja snemma að kynna sér þau, en það er grunsamlegt, þegar skóladrengir þykjast liafa fundið þar allan sannleikann. III. Fyrir nokkrum vikum hélt hinn nýi kennslumálaráðherra Dana, Bom- holt, ræðu á kennaramóti í Slagelse. Hann sagði þar meðal annars: „Það er skoðun sumra manna, að það eigi að vera þögn um skólana. En þetta er misskilningur. Þegar þögn ríkir umhverfis skólana og skólamálin, steinrenna þeir. Ég óska eftir umræð- um um skólana. Ég vildi óska, að hver einasti kennari liti alltaf á skól- ann sinn og skólastarfið eins og eitt- hvað, sem aldrei verður fullgjört. Kennarinn verður sí og æ að hafa þessa spurningu á vörunum: Er það nú ekki eitthvað, þrátt fyrir allt, sem getur verið betra en það er?“ Því næst vakti ráðherrann athygli á því órjúfandi sambandi, sem alltaf þyrfti að vera milli skólans og samfélagsins. „Börnin eiga að læra að vinna,“ sagði hann. „Þau eiga að vinna vel og hefja vinnuna í æðra veldi.“ Því næst kom liann að prófskólanum og mælti: „Prófskólinn er ekki byggður upp í samræmi við þann raunveruleika, sem bíður barnsins. Hann er ekki innblásinn af neinum heilögum eldi. Og það væri sannarlega æskilegt, að við gætum fundið það skólaform, sem leysti barnaskólana frá öllum prófum. Og við prófborðið höfum við aldrei

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.