Heimili og skóli - 01.06.1950, Side 11

Heimili og skóli - 01.06.1950, Side 11
HEIMILI OG SKÓLI 55 Ég held, að við ættum að gefa þessu meiri gaum en við höfum gert, það væri ef til vill fyrsta sporið til að flytja lífið inn í kennslustofuna. „Hjartað heimtar meira en hús- næði og brauð,“ segir skáldið. Barns- sálin heimtar meira en fræðslu inn- an nakinna steinveggja og kuldalegra. Hún heimtar fyrst og fremst hlýju, hlýju frá sál góðs kennara, heimilis- lega hlýju, sem býr yfir öryggi og vellíðan. Þessa hlýju er liægt að veita, einnig í skólunum, með ofurlítilli liugulsemi og hugkvæmni, góðum vilja og góðum skilningi á hinum sálrænu þörfum nemendanna, sem skólunum er trúað fyrir. Þegar ég fer að hugsa um áhrif um- hverfisins, dettur mér ætíð í hug litla baðstofan mín vestur í Skagafirði. Lítil var hún og fátækleg, en bjó þó yfir einkennilegu lífi og fjölbreytni, sem naktir steinveggir búa ekki yfir. Jafnvel kvistirnir og sprungurnar í baðstofusúðinni, þiljunum og rúm- stuðlunum, höfðu hvert sína sögu að segja, og sinn persónuleika. Kvistirn- ir urðu í mínum augum lífi gædd- ir og gálu oft orðið flókið og fjöl- breytt viðfangsefni fyrir ímyndunar- afl mitt, og þótt nú séu liðin 35 ár síð- an baðstofa þessi var jöfnuð við jörðu, man ég enn hvern einasta drátt í svip hennar, og hver þeirra vekur sinn sérstaka hugblæ, er mér verður til þeirra liugsað. Svona djúp og varanleg geta áhrif umhverfisins orðið. Og skiptir það ]rá ekki nokkru máli, hvernig við bú- um skólastofur okkar, þar sem börn og unglingar dveljast langdvölum á mótunaraldri? Ég minntist áðan á skólatöfluna. Skólataflan og krítin eru fullkomn- ustu kennslutækin, sem við höfum enn eignast, et við kunnum með þau að fara. Skólataflan er ekki aðeins gott og fullkomið kennslutæki, hún getur einnig, flestu öðru fremur, á- samt krítinni, orðið til þess að flytja líf inn í kennslustofuna, gera kennsl- una lífi gædda og skemmtilega. Þessi einföldu tæki geta orðið hinir mestu töfragripir. Ég er enn af þeim, sem ekki hefur vald yfir þessum ágætu tækjum, og mér er nær að halda, að þorrinn af íslenzkum kennurum búi ekki yfir þeirri tækni og leikni í notk- un krítarinnar og töflunnar, eins og t. d. stéttarbræður þeirra á Norður- löndum. Danskir kennarar t. d. sleppa aldrei krítinni úr liendi sér, og gildir einu, hvaða námsgrein þeir eru að kenna. Hef ég oft dáðst að, hve þeir geta gert þetta litla og ó- merkilega tæki’ áhrifamikið, og hve þeir geta gætt kennsluna rniklu lífi með litlum krítarmola. Ég held, að þar komi íremur til löng og stöðug æfing heldur en nokkrir sérstakir hæfileikar t. d. fram yfir íslenzka kennara. En í þessu efni sem öðrum þarf mikla þjálfun og þrautseigju, til þess að krítin leiki í liendi kennarans og blási lífi í kennsluna. Með því móti væri ef til vill hægt að spara mörg orð, og .líklega tala allir kenn- arar of rnikið. V. Þegar rætt er um meira líf inn í skólana og kennsluna ,þá verður mér hugsað til kvikmyndanna, þessa mjög misnotaða menningartækis. Ég geri

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.