Heimili og skóli - 01.06.1950, Síða 14
58
HEIMILI OG SKÓLI
Nýtt
barna-
heimili
Barnaheimilið Pdlmholt.
Þann 11. júní s. 1. var vígt nýtt
barnaheimili á Akureyri, er hlaut
nafnið Pálmholt. Það stendur á
fögrum stað við Þingvallastræti ofan-
vert, skammt fyrir ofan bæinn. Stofn-
un þessi er dagheimili fyrir börn á
aldrinum 3—7 ára. Starfstími heim-
ilisins er 3 mánuðir og dvelja börnin
þarna dag hvern frá klukkan 9—6.
Þau fá allan mat á heimilinu, nema
kvöldmat, og er þeim séð fyrir flutn-
ingi að heiman og heim. Forstöðu-
kona stofnunarinnar er ungfrú Ingi-
björg Jónsdóttir frá Akureyri, sem
hefur hlotið undirbúningsmenntun í
uppeldisskóla Sumargjafar í Reykja-
vík. Auk hennar eru tvær fóstrur,
matráðskona og aðstoðarstúlka henn-
ar. Öll innrétting hússins er mjög
haganleg, og allt er heimilið hið vand-
aðasta og mjög smekklegt. Umhverfi
þess er einnig fagurt og hið ákjósan-
legasta. En skemmtilegast af öllu er
þó það, að þessi myndarlega stofnun,
fyrsta barnaheimilið á Akureyri, er
ávöxtur af samstarfi, fórnfýsi og þegn-
skap nokkurra kvenna, er um langt
skeið hafa'varið miklum tíma, miklu
fé og miklum kröftum til að vinna
fyrir þau börn, sem verið hafa félags-
lega verst sett.
Það er kvenfélagið Hlíf á Akureyri,
sem komið hefur þessari stofnun upp
og hyggst að reka hana af eigin ramm-
leik, og á það skilið óskipta þökk og
virðingu fyrir þetta framtak.
Það er mikill siður nú á tímum að
skora á ríki og bæ að láta gera þetta
eða hitt. En við það er oft látið sitja.
Ríki og bæir geta ekki allt, sem þeim
er ætlað að gera. Kvenfélagið
Hlíf het’ur farið öðru vísi að.
Það hefur ekki sent neinar áskoranir.
Það hefur ekki heimtað barnaheim-
ili, livorki af ríki né bæ. Það byggir
heimilið sjálft með rögg og myndar-
skap. Þessi vinnubrögð gætu verið
öðrum til fyrirmyndar, án þess þó, að