Heimili og skóli - 01.06.1950, Side 16

Heimili og skóli - 01.06.1950, Side 16
60 HEIMILI OG SKÓLI OLAFUR GUNNARSSON frá Vík i Lóni: r Eq veit ekki betur en það stæði í Morgun Fyrir nokkrum árum var ég á gangi í Miðholtinu í Reykjavík. Dreng- hnokki nokkur lék sér að því að sparka fótbolta á götunni og var sýnilega í sólskinsskapi. Allt í einu kom í ljós roskin kona og ávítaði drenginn harð- lega fyrir þetta athæfi. Drengurinn gerði sig líklegan til að virða orð kon- unnar að vettugi og halda áfram leik sínum, en þá mælti hún með sann- færingarþunga og heilagri vandlæt- ingu: „Ég veit ekki betur en það stæði í Morgunblaðinu í gær, að drengir ættu ekki að vera að sparka bolta á götunum." Þessi stóridómur var harðari en svo, að drengurinn stæðist liann, snáð- inn hætti samstundis leik sínum og labbaði lúpulegur á brott. Hvað veldur nú því, að leikfús drenghnokki lætur sér segjast við uppkveðinn Morgunblaðsdóm? Fljótt á litið skyldi maður ætla, að hjal Morgunblaðsins lægi snáðum á hans aldri í all léttu rúmi. Skýringin er livorki vísdómur né völd Morgun- blaðsins, enda er ekki miklu fyrir að fara hjá blöðum yfirleitt hvað slíkt snertir. Skýringin er sú, að umhverfi drengsins hefur að mestu óafvitandi innrætt honum djúpa virðingu gagn- vart hinu skrifaði orði. Allur almenningur telur öldungis víst, að það, sem stendur á prenti, blaðinu hljóti að vera satt. Þessi tröllatrú á sannleiksgildi prentaðs máls getur þó verið einhæfð við sérstök blöð, sumir halda t. d. að allt sé satt í Morgunblað- inu, aðrir leita sannleikans í Tíman- um, þriðji hópurinn treystir Þjóðvilj- anum og þar fram eftir götunum. Þessi einhæfni trúarinnar er jafnan sterkust um kosningar, en rénar held- ur, er frá líðum. Hvaða dagblað á ís- landi flytur mest ósannindi árlega, hef- ur sjálfsagt aldrei verið rannsakað, ei.da yrði slík rannsókn afarerfið, þar eð mikill hluti ósannindanna á rætur sínar að rekja til erlendra ósanninda, sem á einn eða annan hátt berast ís- lenzkum blöðum. Við skulum nú athuga örlítið nán- ar, hvernig trúin á prentað mál mynd- ast og jafnframt gera okkur grein fyr- ir kostum hennar og göllum. Flest fólk er þannig skapi farið, að það kýs helzt að vita það, sem sannast reynist. Mörg umræðuefni eru þannig vaxin, að ókleift er að gera út um, hvað rétt er eða rangt, nema með að- stoð bóka eða blaða. T. d. man enginn til lengdar talnafjölda, sem oft er nauðsynlegur, til þess að komast að réttum niðurstöðum. Séu börn upp- alin í návist bókamanna, sjá þau svo að segja daglega fullorðna fólkið leita fróðleiks í bókunum, og jafnvel þeir, sem ekki geta talizt bókhneigðir,

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.