Heimili og skóli - 01.06.1950, Side 22
66
HEIMILI OG SKÓLI
„Þýðing áhugans í uppeldi og
námi,“ 2 erindi. Dr. Matthías jónas-
son.
„Uppeldi og fræðsla" og „Vaxtar-
þráin“.. Sr. Jakob Kristinsson.
„Um íslenzka stafsetningu“. Hall-
dór Halldórsson menntaskólakennari.
„Nýja skólalöggjöfin". Helgi Elías-
son fræðslumálastjóri.
„Skyldur ráðandi kynslóðar við
yngstu borgarana". Isak Jónsson skóla-
stjóri.
„Skólar og uppeldi“. Snorri Sigfús-
son námsstjóri.
„Skólarnir og lífið“. Hannes J.
Magnússon skólastjóri.
„Um vinnubókagerð“. Sigurður
Gunnarsson skólastjóri.
Þrír þeir fyrst töldu fluttu erindi
sín á kvöldin, og var bæjarbúum gef-
inn kostur á að hlýða á þau. Notfærðu
sér það margir, öll kvöldin.
Annar þáttur mótsins var sýningin.
Höfðu margir skólar sent muni á sýn-
inguna. Var hún fjölbreytt og mjög
athyglisverð, og ýmsir lilutir þar frá-
bærlega vel gerðir.
Sýning kennslutækja var aðallega
frá Húsavík og Akureyri.
Auk mótsins voru sýningarnar skoð-
aðar af fjölda bæjarmanna.
Umræður og samþykktir.
A fundum kennarasambandsins
voru þessi mál rædd:
1. Um vinnubækur og gildi þeirra
í skólastarfinu.
2. Fræðslulögin nýju.
3. Handavinnuefni og skólavörur.
4. Ýmis önnur mál, er snertu
kennarasamtökin og skólastarfið.
Þessar voru helztu samþykktir:
1. Skorað á næsta fulltrúaþing S. í.
B. að beita sér fyrir samvinnu kennara
sent víðast af landinu um útgáfu
vinnublaða, eða handbókar til notk-
unar við vinnubókagerð.
2. Skorað á yfirsjórn gjaldeyrismál-
anna að veita nægan gjaldeyri til
kaupa á skólavörum og skipta honum
réttlátlega niður.
3. Skorað á námsstjórann að beita
sér fyrir því við fræðslumálastjórnina,
að komið verði upp sérstakri skóla-
vöruverzlun, einni eða fleiri.
4. Varað við framkvæmd nýju
fræðslulaganna þar, sem engin skil-
yrði eru til verknáms.
5. Skorað á Alþingi og ríkisstjórn
að hraða byggingu nýs kennaraskóla,
og sé stefnt að því, að hann verði full-
gjör eigi síðar en 1957.
6. Áskorun til allra ábyrgra þjóð-
félagsþegna um að beita sér ötullega
fyrir skógrækt, og lýst ánægju yfir
þeirri nýbreytni Kennaraskólans, sem
hófst í vor, að hafa námskeið í skóg-
rækt fyrir kennaraefni.
7. Ályktun um bindindismál. Taldi
fundurinn, að vaxandi nautn áfengis
og tóbaks í landinu væri öllum hugs-
andi mönnum áhyggjuefni og skoraði
á kennara og alla uppalendur að vinna
gegn henni.
Kosningar. — Skemmtiferð. —
Kveðjuhóf.
í lok fundarins var kosin ný stjórn
fyrir sambandið. Fráfarandi stjórn
skipuðu kennarar af Akureyri, þau
Eiríkur Sigurðsson, Eiríkur Stefáns-
son og Jútit Jónbjörnsdóttir. Nú var
stjórnin kosin rir Þingeyjarsýslu.
Hlutu kosningu: Sigurður Gunnars-