Heimili og skóli - 01.06.1950, Qupperneq 23
HEIMILI OG SKÓLI
67
Meiri hluti mótsgesta.
son skólastjóri, Jóhann Guðmunds-
son kennari í Húsavík og Þórgnýr
Guðmundsson kennari í Aðaldal.
Einn daginn fóru mótgestir
skemmtiferð fram Eyjafjörð. Var
kornið við á nokkrum merkum stöð-
um, svo sem Laugalandi, Munkaþverá,
Möðruvöllum, Saurbæ og Grund. En
ferðinni lauk með því, að ekið var að
hinu nýreista barnaheimili, Pálmholti,
sem stendur skammt ofan við Akur-
eyri..
Til þess að gera aðkomukennurum
auðveldara að taka þátt í mótinu, var
liöfð heimavist og mötuneyti í barna-
skólanum, þar sem mótið var haldið.
Heimavistarstjóri var Páll Gunnars-
son kennari, en ráðskona frú Jónína
Þorsteinsdóttir.
Síðasti dagur mótsins var laugardag-
urinn 10. júní. Eftir kvöldverð komu
mótgestir saman á kvöldvöku. Stjórn-
aði henni Örn Snorrason kennari. Var
þar margt til skemmtunar, svo sem
upplestur, söngur o. fl.
Að henni lokinni settust menn að
kaffidrykkju, alls um 60 manns. Voru
þar fluttar margar ræður.
Snorri Sigfússon námsstjóri stýrði
þessu hófi, og hafði hann verið for-
ystumaður og stjórnandi mótsins í
heild. Er leið að miðnætti, reis hann
úr sæti og sagði þessu fjórða móti
norðlenzkra barnakennara slitið. Fóru
sumir kennarar heim til sín þegar um
nóttina, en aðrir næstu daga.
Voru menn almennt ánægðir með
mótið, og þótti það hafa tekizt mjög
vel. — Það liggur við að það sé í frá-
sögur færandi á þessari miklu reyk-
ingaöld, að aldrei sást kveikt í vindl-
ingi á þessu fjölmenna móti. Jafnvel
þótt liæpið sé, að allir mótsgestir hafi
verið bindindismenn á tóbak, ber þó
slíkt vott um háttvísi, sem vert er að
benda á.