Heimili og skóli - 01.06.1950, Síða 27
HEIMILI OG SKÓLI
71
" HEIMILI OG SKÓLl ]
TÍMARIT UM UPPELDISMAL
Útgefandi: Kennarafélag Eyjafjarðar.
Ritið kemur út í 6 heftum á ári, minnsl
24 síður hvert hefti, og kostar árgangur-
inn kr. 15.00, er greiðhu fyrir 1. júní.
Útgáfustjórn:
Snorri Siefússon. námsstjóri.
Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Páll Gunnarsson, kennari.
Afgreiðslu- og innheimtumaður:
Árni Björnsson, kennari, Þórunnar-
stræti 103, Akureyri.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, Páls Briems-
götu 20, Akureyri. Sími 1174.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
■>—-.. -**
kennslan. Námsefnið þarf ekki að
nefna hér. Það er ákvðeði með biblíu-
sögunum, sem skólunum eru fengnar
til kennslu. Þó skyldi lestri þeirra
þannig hagað, að námsefni yngri barn-
anna væri eingöngu sögulegt, allt að
ellefu ára aldri. Sjö til átta ára börn-
um ættu kennarar að segja valdar sög-
ur úr Nýja testamentinu og raunar
Gamla testamentinu líka og sýna
þeim stórar biblíumyndir. — Slík
kennsla er þeim kærkomin, að
minnsta kosti einu sinni í viku. Allt-
af skyldi krafizt nokkurs utanbókar-
uáms í kristnum fræðum. Og ganga
þá ríkt eftir, að vel sé numið og vel
skilið. (Framhald).
Af sérstökum ástæðum kemur þetta
hefti ekki út á tilsettum tíma. Eru
kaupendur beðnir að afsaka það.
Rit send Heimili
og skóla
Blik, Ársrit Gagnfræðaskólans í
Vestmannaeyjum. Þetta er allstórt rit,
eða 80 blaðsíður að stærð og flytur
margvíslegt efni. Einkum fjallar ritið
um nefndan skóla og málefni lians.
Lengsta greinin nefnist Gagnfræða-
skólinn í Vestmannaeyjum 20 ára. Er
það saga skólans síðastliðin 20 ár, með
fjölda mynda. Greinin er eftir skóla-
stjórann, Þorstein Víglundarson. Þá
er greinaflokkurinn Þáttur nemenda.
Eru það ritgerðir og sögur eftir nem-
endur skólans. Þá er Þáttur skáta,
með nokkrum myndum, og margir
fleiri þættir og greinar. Þetta ársrit
er myndarlegt og skólanum til sóma.
Skátablaðið, 3.-4. tölublað þ. á.
Heftið liefst á grein, sem nefnist Meg-
inreglan eftir Baden Powell. Þá er
saga, sem nefnist Ella er orðin stór.
Næst kemur þáttur um Skátafélagið
Andvara. Þá er grein, er nefnist Al-
þjóðaskátamót í Englandi 1949, og
önnur, sem nefnist Kynnisför til Eng-
lands. Margt fleira er í ritinu, sem er
prýtt fjölda mynda.
Foringjablaðið. 2. tölublað 1950.
Geir Gígja skrifar um plöntusöfnun.
Þá eru greinar, sem nefnast: Hvað er
að gerast á Úlfljótsvatni?, Úlfljóts-
vatn, Gilwelskóli, Nú má enginn
bregðast, R. S. starfið. Allar þessar
greinar eru eftir foringja í skátastarf-
inu.