Heimili og skóli - 01.06.1950, Page 28

Heimili og skóli - 01.06.1950, Page 28
72 HEIMILI OG SKÓLl Frá skrifstofu fræðslumálastjóra: YFIRLIT um framkvæmd fræðslulaganna nýju (nr. 22, 10. apríl 1946). Skólaárið 1946—’47 eru lögin komin til framkvæmda í 3 skólahverfum af 220 eða 1,36%. Það ár taka 72 börn barnapróf, en alls eru 538 skólaskyld böm í þeim hverfum. Skólaskyld börn í landinu eru áætluð 15540 alls það ár. Nýju lögin ná þá til 3.47% skólaskyldra barna. Skólaárið 1947—’48 eru lögin komin til framkvæmda í 18 skólahverfum, eða alls 8.8% af skólahverfunum. Það ár taka 1040 börn barnapróf af 8142 skólaskyldum börnum, er voru í þess- um skólahverfum. Skólabörn í land- inu eru þá áætluð 15770 samtals. Nýju lögin ná þá til 51.63% skólaskyldra barna. Skólaárið 1848—’49 eru lögin komin til framkvæmda í 24 skólahverfum af 220 eða 10.91%. Þaðár taka 1200 böm barnapróf af 8275 skólaskyldum börn- um. Skólabörn í landinu eru áætluð 16000. Nýju lögin ná þá til 51.72% skólaskyldra barna vorið 1949. í maí 1950 eru lögin komin til fram- kvæmda í 27 skólahverfum af 220 eða 12.27%. Barnafjöldi í þeim skóla- hverfum er sennilega lítið eitt hærri en 1949, svo að lögin ná nú til ca. 53% skólaskyldra barna, ef gert er ráð fyrir álíka fjölgun og undanfarin ár (ca. 230 árh). Skólabörn 1950 væru þá alls ca. 16230. SKÝRSLA um bamapróf 1947—1949: Árið 1947 eru barnapróf á ísafirði, Borgarnesi og Hveragerði. Árið 1948 á sömu stöðum og enn- fremur í Reykjavík, Hafnarfirði, Ak- ureyri, Seyðisfirði, Grindavík, Kefla- vík, Mosfellssveit, Flateyri, Bolungar- vík, Dalvík, Eskifirði, Borgarfjarðar- hreppi, Stokkseyri, Eyrarbakka og Sel- fossi. Árið 1949 bætist við Neskaupstaður, Sandgerði, Kópavogur, Stykkishólm- ur, Reyðarfjörður og Höfn í Horna- firði. Árið 1950 er kunnugt um að þessi héruð bætast við: Akranes, Húsavík og Gerður í Gullbringusýslu. —o— Leiðrétting við leiðréttingu. í fyrsta hefði þ. á. misprentaðist vísuhending eftir Einar Benediktsson, sem leiðrétt var í 2. hefti. En svo hlá- lega vildi til, að hendingin kom nú enn verr útleikin í þessari „leiðrétt- ingu.“ Hendingin er svona og átti alltaf að vera svona: Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Gjafir til Heimilis og skóla: Steingrímur Arason kennari 100 krónur. Kári Tryggvason kennari 35 krónur. — Þessum velunnurum rits- er hér með þökkuð vinsemdin.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.