Heimili og skóli - 01.08.1954, Síða 13
HEIMILI OG SKÓLI
57
ar eftir stærð þess flatar, sem hann hyl-
ur en sjálfum fjöldanum. Við rann-
sókn, sem gerð var á þessu, kom í ljós,
að þau töldu 10 spilamerki fleiri en 18,
en þessi 10 merki huldu stærri flöt en
hin átján.
Þótt það komi frekar við félagslegri
sálfræði en reikningi, skal ég geta þess,
að rannsóknir, sem gerðar hafa verið á
stærðarmati barna á peningum, leiddu
í ljós, að börn fátækra foreldra mátu
peninga mun stærri en börn ríkra for-
eldra, er þarna enn ein sönnun fyrir
hinum miklu áhrifum umhverfisins á
börnin.
Þegar reikningskennslan hefst, verða
börnin, ef vel á að vera, að uppfylla
áðurtöld tíu skilyrði með tilliti til
þeirra talna, sem unnið verður með
fyrstu kennsluvikurnar. Rannsókn,
sem gerð var á sex ára börnum, leiddi
í Ijós, að 59% þeirra skynjuðu töluna
fimm, án þess að telja, en 41% gerðu
það ekki. Gefur þetta nokkra hug-
mynd um, hvernig börnin muni vera
á vegi stödd með tilliti til reiknings,
þegar skólanám þeirra hefst. Alls kon-
ar kennslutæki eru til mikilla bóta við
byrjunarkennslu í reikningi, t. d.
kubbar mismunandi að stærð og lit,
kúlur þræddar upp á stífa prjóna, hafa
gefið mjög góða raun. Aríðandi er í
sambandi við útbúning kennslutækja,
að þau þoli mikla notkun, litirnir
þurfa að vera mismunandi, t. d. er gott
að hafa fimm eða 10 kúlur með sama
lit. Eins og allir, sem kennt hafa fyrstu
bekkingum í barnaskóla vita, þreytast
börnin tiltölulega fljótt á einhæfu
verk'efni, og er því gott að hafa einhver
kennslutæki til tilbreytinga í reikn-
ingskennslunni.
Kennslubækur í reikningi hafa ver-
ið talsvert athugaðar, einkum í Banda-
ríkjunum. Hafa þær rannsóknir leitt í
ljós, að sumar tölur og talnasambönd
fá óþarflega mikla æfingu, en aðrar
tölur og talnasambönd of litla. Það eru
einkum lægstu tölurnar, sem eru æfð-
ar óþarflega mikið, eins og ýmis smá-
orð taka óeðlilega mikið rúm í hánda-
hófskenndri lesbók. Þá kom það einn-
ig á daginn, að margföldunartaflan
hlýtur óeðlilega mikla æfingu í sam-
bandi við t. d. samlagningartöflur, sem
vilja verða útundan. Kröfur daglega
lífsins voru ekki alltaf hafðar í huga
sem skyldi, þannig að hugareikning-
urinn, sem mest reynir á í daglegu
staifi, varð útundan, en mest áherzla
lögð á skriflegan reikning, sem allur
almenningur notar aðeins örsjaldan,
sumir naumast einu sinni á ári, þegar
þeir gera skattaskýrslu, ef þeir fá þá
ekki aðstoð við skattframtalið. Víða
hætti mönnum við að leggja óeðlilega
áherzlu á vandaða uppsetningu reikn-
ingsdæma, en gáfu hraðanum of lítinn
gaum, þótt hann geti verið nauðsyn-
legur og að öllum jafnaði nauðsyn-
legri en hárnákvæm uppsetning. Stærð
prentaðra talna reyndist heppilegust í
10—12 punkta stærðum, en það þýðir
það, að talan er 3,5—3 millimetrar á
hæð. Brot reyndust yfirleitt vera prent-
uð með of smáu letri. Til þess að fylgj-
ast méð kunnáttu eða kunnáttuleysi
barna, er nú talið nauðsynlegt að hafa
sérstök próf, sem hæfð eru á nokkuð
svipaðan hátt og greindarpróf, próf
þessi sýna, livað eðlilegt er að barn á
ákveðnu aldursstigi reikni mörg dæmi
á ákveðnum tíma. Til þess að komast
að raun um í hverju reikningsvillur