Heimili og skóli - 01.08.1954, Blaðsíða 30
74
HEIMILI OG SKÓLI
sungin ljóð eftir hann. Á eftir var
gengið að Hraunsvatni. Veður var hið
fegursta og förin mjög ánægjuleg.
Síðasta kvöld mótsins var að mestu
helgað Snorra Sigfússyni, sem nú lætur
af námsstjórn á Norðurlandi. Barna-
kór Akureyrar söng undir stjórn
Björgvins Jörgenssonar, og Orn
Snorrason flutti snjallan gamanþátt.
Að því loknu hófst kveðjusamsæti fyr-
ir Snorra og frú hans. Stjórnaði Eirík-
ur Sigurðsson jrví. Aðalræðuna flutti
Hannes J. Magnússon, skólastjóri, og
tilkynnti, að sambandsfélögin hefðu
ákveðið að gefa Snorra málverk. Lítil
stúlka færði þeim hjónum blómvönd.
— Næst töluðu skólastjórarnir, Sigurð-
ur Gunnarsson og Björn Daníelsson.
E>á afhenti Jón Þ. Björnsson Snorra
ljósmynd af Hólum í Hjaltadal, sem
sérstaka gjöf frá Kennarafélagi Skaga-
fjarðar. — kvæði fluttu Kári Tryggva-
son og Magnús Pétursson. Margir
fleiri tóku til máls og fluttu kveðjur
og þakkir. Mikið var sungið undir
borðum.
Að síðustu flutti Snorri Sigfússon
ræðu. Þakkaði hann samstarf liðinna
ára og vináttu. Einnig þakkaði hann
þann heiður, sem honum væri nú
sýndur.
Þá var 6. móti Sambands norð-
lenzkra barnakennara slitið.
Eins og áður getur, voru nokkur
kvölderindi flutt á mótinu. Voru þau
fjögur alls.
1) Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri:
Skólalöggjöfin og framkvæmd hennar.
2) Dr. Broddi Jóhannessoon: Að
vera maður.
3) Dr. Matthías Jónasson: Starfrænt
nám og greindarmælingar.
4) Snorri Sigfússon, námsstjóri:
Skólarnir og framtíðin.
Auk þessa fluttu eftirtaldir menn
fræðsluerindi fyrir kennara:
1) Hannes J. Magnússon, skóla-
stjóri: Úr utanför.
2) Dr. Broddi Jóhannesson: Gömul
vísa“.
3) Jóhannes Ó. Sæmundsson, kenn-
ari: Um reikningskennslu o. fl.
4) Sigurður Gunnarsson, skóla-
stjóri: Um starfsuþpeldisfræði og
kennslu byggða á henni.
5) Snorri Sigfússon, námsstjóri:
Sparifjársöfnun í skólum.
6) Helgi Tryggvason, kennaraskóla-
kennari: Söngur og söngkennsla í
barnaskólum.
7) Þorsteinn Éinarsson, íþróttafull-
trúi: Um íþróttir og hagnýta beitingu
líkamsorkunnar.
8) Matthías Þorfinnsson og Stefán
Ó. Jónsson: Starfsíþróttir.
Þingið samþykkti meðal annars eft-
irfarandi tillögur:
1) Aðalfundur S. N. B., haldinn á
Akureyri vorið 1954, telur, að sam-
vinna presta og kennara um kristin-
dóms- og uppeldismál, sé svo mikil-
væg, að full ástæða sé til að efnt verði
þar til skynsamlegra samtaka. Því
beinir fundurinn þeim tilmælum til
forystumanna þessara stétta, að þeir
athugi möguleika á skiptdegri sam-
vinnu um þessi mál.
2) Aðalfundur S. N. B. 1954 ályktar,
og leggur á það mikla áherzlu, að miða
skuli reikningskennslu barnaskólanna
eingöngu við það, að hún verði traust
undirstaða að þátttöku unglinganna í
daglegum störfum og atvinnulífi þjóð-
arinnar. Álítur fundurinn, að yngstu