Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1954, Blaðsíða 43

Heimili og skóli - 01.08.1954, Blaðsíða 43
HEIMILI OG SKÓLI 87 kennarar komi nú til starfa frá kenn- araskólunum með margar nýjar hug- myndir og mikla þekkingu á því, hvernig eigi að umgangast börn, og þó gangi þeim stjómin ekki betur en raun er á. Nú ætla ég að segja ykkur mína skoðun á þessum hlutum. Það er aðeins ein aðferð til þess að læra að skilja böm, og hún er sú að vera með þeim, lifa og starfa með þeim — lengi. Og sá, sem vill læra þá list, að umgangast börn réttilega, verður jafnframt að reyna að setja sig inn í hin margbreytilegu skilyrði, sem þau eiga við að búa í lífinu. Hann verður sjálfur að þekkja lífið og gera sér far um að setja sig í annarra spor. Sá, sem vanrækir þetta, vinnur það tap aldrei upp, og ekki einu sinni með því að lesa barnasálarfræði. Og því meira sem hann les af því tagi, því heimskari verður ltann meðal bam- anna. Kennari, sem vill hafa góðan aga, verður sjálfur að kunna að aga sjálfan sig. Ef hann skiptir hið minnsta skapi, þegar einhver nemandinn hagar sér illa, hefur hann tapað leiknum. Hann er þá ekki fær um að stjórna öðrurn. Eitt hið mikilvægasta hlutverk kenn- arans er að halda uppi góðum aga. En hér er ma'rgt, sem getur komið honum að gagni. Hann verður að þjálfa svo persónuleika sinn og myndugleika, að hann geti fengið hvaða óhlýðinn strák sem er til að standa upp, er hann skipar honum það, þótt hann hafi neitað því. Þarna kemur einnig að góðu haldi líkamlegt atgerfi. En á hann að taka í hann? Já, það getur verið nauðsynlegt, en hann má eLki berja hann. Og kennari, sem hefur eitthvert bein í nefinu, þarf þess held- ur ekki. En ef honum finnst hann þurfa að berja, þá er hann ekki til þess fallinn að vera kennari í bæjarskóla. Þá er það ekki lítils vert, að kennar- inn sé vel að sér og kunni vel sín fræði, og hann verður að kenna af lifandi áhuga. Ef þetta er allt fyrir hendi, held ég að aginn komi af sjálfu sér. Eg sé stundum greinar í blöðum, þar senr vikið er að því, að kennarar verði að vera algjörlega hlutlausir og óhlutdrægir í kennslu sinni, leggja efnið fyrir án þess að taka afstöðu til þess sjálfir. Ef þetta á að vera einliver nýtízku kennslu- og uppeldislist, verð ég að segja, að ég trúi ekki á hana. Kennarinn má ekki vera hlutlaus í einni einustu námsgrein, eða svo óhlutdrægur, að hann telji það skyldu sína að leiða franr öll sjónarnrið, sem til greina koma, jafnframt því, sem hann hefur sjálfur myndað sér per- sónulega. Það er ekki lrægt að ganga fram hjá því, að kennarinn hefur sitt persónulega sjónarmið, og þarf að hafa það. Þetta sjónarmið setur nrark sitt á alla kennslu hans, sjálfrátt og ósjálfrátt. En umburðarlyndi verður kennarinn að eiga. Sá, sem ekki er um- burðarlyndur, er ekki til þess fallinrr að kenna börnum frá ólíkum heimil itm með ólíkunr skoðunum og úr ólíku andrúmslofti. Það er mikið unt það rætt nú, að það þurfi að ala börnin upp á réttan hátt. Hér er komið að höfuðatriðinu: Kennarinn þarf að byrja á því að upp ala sjálfan sig, og þá ekki síður foreldr- arnir. Ég held að bæði kennari og fað-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.