Heimili og skóli - 01.08.1954, Blaðsíða 31
HEIMILI OG SKÓLI
deildum verði árangursríkast, að
kennslan sé mjög hlutlæg og starfræn,
mikill hugareikningur og talnaþjálf-
un, en í eldri deildum sé jafnan ræki-
leg, munnleg tjáning, samhliða skrif-
legum verkefnum. Hraðað sé undir-
búningi að útgáfu nýrrar kennslubók-
ar með slíku sniði, og skorar fundur-
inn á fræðslumálastjórn að stuðla ötul-
lega að samningu og útgáfu þvílíkrar
bókar og láta einskis ófreistað, til þess
að útgáfan verði vönduð og vel útlít-
andi og geti sem fyrst komið að not-
um.
3) Aðalfundur S. N. B., haldinn á
Akureyri dagana 30. maí til 3. júní
1954, beinir þeirri áskorun til yfir-
stjórnar fræðslumálanna, að hún hlut-
ist til um, að upp verði teknar í Kenn-
araskóla íslands leiðbeiningar í vinnu-
kennslu, á grundvelli þeirrar starfs-
uppeldisfræði, sem nú ryður sér ört til
rúms í skólurn erlendis. Jafnframt
beinir fundurinn þeini eindregnu til-
mælum til fræðslumálastjórnarinnar
og til stjórnar S. í. B., að unnið verði
í næstu framtíð miklu markvissara en
verið hefur að útgáfu bóka og ýmissa
gagna, sem nauðsynleg eru, til þess að
starfræn kennsla verði almennt upp
tekin í skólum landsins.
4) Mót S. N. B. 1954 lítur svo á, að
skemmtanalíf æskunnar þurfi nú mik-
illa úrbóta við, ef vel á að fara. Þess
vegna skorar kennaramótið á fræðslu-
málastjórn landsins að ráða nú þegar
hæfan mann til þess að hafa á hendi
forystu- og leiðbeiningastarf varðandi
skemmtanalíf æskunnar í landinu.
5) Aðalfundur S. N. B. 1954 lætur í
ljósi ánægju sína yfir því, að Lands-
bandi íslands hefur ákveðið að beita
75
sér fyrir sparifjársöfnun skólabarna, og
þakkar jafnframt Snorra Sigfússyni,
námsstjóra, fyrir ötult brautryðjenda-
starf á þessu sviði.
6) Mót norðlenzkra barnakennara
1954 lýsir megnri andúð á starfsemi
þeirra manna, er standa fyrir útgáfu
alls konar sakamálatímarita, sem flytja
glæpa- og afbrotasögur og hófu göngu
sína á síðastliðnu ári. Telur fundurinn
nauðsynlegt, að nöfn þessara útgef-
enda séu birt og skorar á viðkomandi
stjórnarvöld að hlutast til um, að svo
verði. Lesefni þessara tímarita, ásamt
ýmsum kvikmyndum um sama efni, og
svonefnd „hazardblöð“ eru tvímæla-
laust siðspillandi fyri'r börn og ung-
linga og því óhæf til lestrar eða sýning-
ar hjá menningarþjóð.
7) Mót S. N. B. 1954 telur sérstaka
ástæðu til þess að láta í ljósi ánægju
sína yfir því, að smíði hins nýja kenn-
araskóli verði hafin á þessu sumri.
Mótið lítur svo á, að framkvæmd þessi
sé hin mikilvægasta fyrir alla þróun
kennslumálanna í landinu og lætur í
Ijósi þá eindregnu ósk, að byggingu
skólans sé hraðað eftir fremstu getu.
8) Mót S. N. B. 1954 fagnar því
mjög, að Bókabúð Menningarsjóðs
hefur tekið að sér útvegun og söhi á
margvíslegum skólavörum, skólatækj-
um og erlendum handbókum fyrir
kennara. Telur mótið það mikilvægt
fyrir kennara og alla starfsemi skól-
anna. Jafnframt þakkar mótið Bóka-
búð Menningarsjóðs fyrir hina eftir-
tektarverðu bóka- og tækjasýningu,
sem menn hafa notið hér þessa daga.
9) Mót S. N. B. 1954 lítur svo á, að
í uppeldisstarfi skólanna komi fram
margvísleg vandamál, sem ekki er á
O O