Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1954, Qupperneq 15

Heimili og skóli - 01.08.1954, Qupperneq 15
HEIMILI OG SKÓLI 59 um sökum vara sérfræðingar í reikn- ingskennslu mjög við því að æfa sömu aðferðina mjög lengi í einu. Vitað er að börnum láist mjög oft að taka eftir reikningsmerkjum, og er talið, að eitt ráðið til þess að bæta úr því, sé að skipta nokkuð oft um reikningsaðferð. Þreyta orsakar oft óbeinar villur, t. d. hefur komið í ljós, að drengir, sem fara í reikningstíma nýkomnir úr knattleik, hafa þrisvar sinnum fleiri villur í dæmum sínum en þeir hafa undir venjulegum kringumstæðum. Yfirleitt verður að teljast rétt að vera varkár í sambandi við íþróttir í skól- um, tilgangur þeirra er vitanlega já- kvæður, en ekki má miklu muna til þess að árangurinn af iðkun þeirra verði neikvæður. Miklar beygingar og stökk yfir ýmis áhöld eru ekki öllum börnum jafneðlileg, og séu börnin neydd til íþróttaiðkana, er hætt við, að- þær verði þeim til meiri skaða en gagns. Ef leikfimi og knattspyrnu eru samfara gufu- og vatnsböð, eykur það gildi íþróttanna til mikilla muna, en án baða verður leikfimi að teljast hæpin. Reikni börnin hraðara en þeim er eðlilegt, má búast við villum, en ekki eru slíkar villur nein sönnun þess, að börnin séu beint léleg í reikningi. Þröngt meðvitundarsvið veldur yfir- leitt villum, en ástæðurnar til þess, að sá hluti meðvitundarinnar, sem bein- ist að reikningnum er lítill, geta verið mjög margar. Versta tegundin er lítil greind, og verður þar ekki miklu um þokað, en jafnvel bráðgreind börn geta verið svo viðutan í reikningstíma, að þau skili svo að segja hverju einasta dæmi rangt reiknuðu. Þetta getur t. d. verið vegna þess, að börnin ætli að gera eitthvað ákveðið að tímanum loknum og geti ekki slitið hugann frá því, þau geta líka verið að hugsa um eitthvað, sem nýlega hefur gerzt, en dæmin, sem þau eru að reikna geta líka verið svo auðveld, að þau þurfi lítið að hugsa um þau og þá eiga alls konar óviðeigandi tengsli hægast með að láta til sín taka og rugla þannig starfið. Allar rannsóknir sýna, að mað- ur, sem er annars hugar eða sinnir af einhverjum ástæðum ekki verkefninu af nógu miklum áhuga, gerir flestar villur í léttum dæmum. Tilfinningatruflanir barna hafa vit- anlega slæm áhrif á allt nám, reikning eins og annað, og eru þær oft óbein orsök til lítillar getu. Heimilisástæður alls konar eru algengustu orsakir til tilfinningatruflana og geta þær oft ver- ið þannig, að bamið þurfi meira á samúð og vináttu kennarans að halda en þekkingunni, sem honum ber að veita því samkvæmt fræðslulögum. Ég gæti hugsað mér, að einhverjir myndu vilja vita, hvort talið sé kleift að kenna mönnum algerlega villulaus- an reikning, eins og hægt er að kenna svo að segja villulausan lestur. Svarið verður, að það er ekki hægt. Sálfræð- ingar líta á reikningsvillur eins og sjálfsagðan hlut, sem ekki verði með öllu umflúinn. Vel æfður reikningur verður vslrænn, þegar tímar líða, með öðrum orðum, heilinn sleppiraðmestu leyti stjórn á léttri samlagningu og frádrætti, en mænan tekur við. Þegar svo er komið, og á það stig þarf fólk að komast, má alltaf búast við einhverj- um villum. Það er heldur ekki hægt að koma í veg fyrir það, að menn verði

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.