Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1954, Side 32

Heimili og skóli - 01.08.1954, Side 32
HEIMILI OG SKÓLI 76 færi kennarans eins að leysa, en fást mætti lausn á í samvinnu kennara 02; sálfræðilega menntaðs manns. Mótið skorar því á hæstvirtan menntamála- ráðherra að skipa skólasálfræðing til að vinna að slíkum máltrni með kenn- urum landsins. 10) Mót S. N. B. 1954 telur söng- kennslu og söngiðkun í skólum lands- ins mjög mikilsverðan þátt í uppeldi og menntun hvers manns og telur því ófært, að lengur haldist hið óviðun- andi ástand í söngmálum skólanna. Leggur því fundurinn áherzlu á eftir- farandi atriði: Að Kennaraskóli íslands leggi hina mestu áherzlu á að koma sem allra flestum nemendum sínum til nokkurs þroska í söngmennt, svo að þeir verði færir um að kenna sönglög á lipran og smekklegan hátt, hver í sinni skóla- stofu. Að nám undir söngkennarapróf verði aukið með þeim námsatriðum, sem raunverulega koma að gagni. Að komið verði á námsskeiðum í söngkennslu með starfandi kennurum, svo að þeir verði færir um að kenna sönglög, hver í sínum bekk eða skóla. Að stefna beri að því að fá hæfan mann til þess að skipuleggja þessi mál og hafa eftirlit með þeim. Skólunum verði hið bráðasta séð fyrir kennslubókum í undirstöðuatrið- um í söng- og tónþekkingu. —X— Móðirin situr fyrir framan spegilinn og er að skoða hár sitt. Allt í einu finnur hún eitt grátt hár og slítur það burt. Erla litla, sem hefur fylgzt með gjörðum móður sinnar, segir þá: „Mamma, var þetta hár af ömmu?" Fóstra mtn. Minn hugur til baka, hálfa öld hljóðlátur reikar. Vorfagurt kvöld ilmblæ andaði um grund. — Þá gengum við, fóstra mín, hæg og hljóð, hrifin af lífsins dýrðar óð — — okkar síðustu samverustund. En síðan hef ég oft, hljóða stund, í huganum leitað á þinn fund og setið við sængurstokk þinn. Þú raulaðir undir við rokksins hljóð, — hve rótt varð mér löngum við þann óð. — Þann unað ég ennþá finn. I rökkrinu, er hélt ég í hendina á þér, þú hafðir margt ljóðið yfir með mér, sem ennþá er ógleymt og kært. — Og mörg ein saga, er sagðir þú þá, seinna meir, þegar húmið féll á lýsti, sem leiðarblys skært. Ég veit að þú áttir ei völd né auð. Þú vannst þér, með striti, daglegt brauð. — Þinn auður var annan veg. Þitt trúfasta hjarta var hreint sem gull, þín heita sál var af ástríki full. — Það veit enginn jafnvel og ég. Og hver hefur unnað mér heitar en þú? Hver heitara beðið í sannri trú, um farsæld fósturbams síns? Felur göfug bæn ekki bænheyrslu í sér?' Var hið bezta, er síðar fannst hjá mér ekki endurskin ástríkis þíns?

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.