Heimili og skóli - 01.08.1954, Síða 33
HEIMILI OG SKÓLI
77
Barnaskóla Akureyrar var slitið þann
13. maí að viðstöddum mörgum gestum
Skólastjóri, Hannes J. Magnússon,
flutti ýtarlega skýrslu um starf skólans
síðastliðið ár. Alls voru í skólanum í
vetur 831 barn, er skiptust í 32 deildir.
23 fastir kennarar eru við skólann og
tveir stundakcnnarar. Við inntöku-
próf 7 ára barna innrituðust í skólann
180 börn, en 120 börn hverfa úr- skól-
anum, svo að fjölgun á þessu einu ári
verður um 60 börn. Gat skólastjóri
þess, að ný skólabygging væri nú orðin
svo knýjandi nauðsyn, að það þyldi
enga bið, og er ekki séð, hvernig hægt
verður að koma öllum þessum börn-
um fyrir næsta vetur.
Heilsufar í skólanum var svo gott í
vetur, að fá dæmi munu slíks. Aðeins
4 börn urðu berklajákvajð á árinu.
Börnin hækkuðu að meðaltali 3,27 cm.
°g þyngdust um 2,40 kg. Tann-
skemmdir eru miklar, svo að aðeins
118 börn hafa allar tennur heilar. 332
börn nutu 'jósbaða í skólanum. Börn-
in drukku l\/2 fat af lýsi og borðuðu
með því 9 tunnur af hráum gulrófum.
Barnaprófi luku 118 börn. Þar af
fengu 9 ágætiseinkunn, 86 1. einkunn
og 21. 2. einkunn. Við skólaslit var út-
f æsku ég tíndi þér ilmreir í vönd, —
þér eyrarrós las ég veikri hönd. —
Svo lág voru launin þín. —
— Scm helgur dómur í hjarta mér
geymist hver sú minning,sem tengd er þér,
— fóstur — móðirin mín.
MAGNÚS.
býtt þrennum bókaverðlaunum fyrir
þrjár beztu ritgerðir við barnapróf, er
Bókaverzlun POB hefur ákveðið að
veita á hverju vori. Verðlaun þessi
hlutu Ásgerður Ágústsdóttir, Hjörtur
Pálsson og Þorvaldur Grétar F.inars-
son.
Sunnudaginn 9. maí var í skólahum
sýning á handiðju barnanna, skrift,
teikningum og vinnubókum, og sótti
hana mikill fjöldi bæjarbúa.
Gerð var tilraun í skólanum með að
taka upp lestur íslendingasagna í
þremur efstu bekkjunum, og voru til
þess valdar Gunnlaugs saga Orms-
tungu, Víga-Glúms saga og Gísla saga
Súrssonar. Er ætlunin með þessari til-
raun að fá börnin til að kynnast ís-
lendingasögunum, og ef verða mætti,
að þau yrðu þar fyrir áhrifum af máli
þeirra og stíl.
Haldið hefur verið áfram með
kennslu í hljóðfræði, og einkum lögð
áherzla á hv framburðinn, með tilliti
til þess, að auðvelda rétta stafsetningu.
Samræmdur framburður liefur verið
kenndur í skólanum síðan veturinn
1950 með allgóðum árangri. Flámæli
er nálega ciþekkt í skólanum, en
nokkuð er farið oð bera á hinum
sunnlenzku linhljóðum.
Þann 8. desember var afhjúpuð
brjóstmynd úr eir af Snorra Sigfússyni,
sem barnaskólanum var falið að varð-
veita, og hefur áður verið sagt frá því
hér í ritinu.