Heimili og skóli - 01.08.1968, Page 33

Heimili og skóli - 01.08.1968, Page 33
vilduð kaupa eitthvað handa honum fyrir mig um jólin eða á afmælisdaginn hans, og segja 'honum, að þetta sé frá mér? Það er betra en ég fari sjálfur að senda hon- um þetta. Eg á þá á hættu að kaupa eitt- hvað, sem hann á fyrir.... til dæmis hjól- skauta.“ Hún glápti á mig með sínum heiðar- legu ungmeyjaraugum. „Það hefur nú enginn not af hjólskautum hér,“ sagði hún. Mér féll það miður, hvað hún var sein að skilja mig. „Ég á við það, að ég vil síður vera að senda honum hluti, sem móðir hans er ibúin að :gefa honum. Mér hefði vel getað dottið í hug að senda hon- um skauta, ef ég hefði ekki vitað, að móð- ir hans hefur þegar gefið honum eina.“ Hún starði undrandi á mig. „Ég veit ekki, hvað þér eigið við,“ sagði hún. „Hann á enga móður og hún hefur því ekki gefið bonum neina hjó!lskauta.“ H. J. M. þýddi. TIL GAMANS Þaff bar eitt sinn svo við, aff flugvélin, sem ég var með og var frá Mið-Asíu var mörgum klukku- stundum á eftir áætlun, þegar hún loks kom til Rómaborgar, ég náði því ekki í þá flugvél, sem ég ætlaði með heim til mín. Þetta var því síðasti möguleiki til aff komast heirn, sem þarna hafði gengið mér úr greipum. Eg kom skjálfandi af reiði inn á skrifstofu flgufélagsins og jós þar úr skálum reiði minnar yfir þessari meðferð. Mað- urinn, sem var við afgreiðslu tók mér vinsamlega og sagði að flugfélagið myndi með ánægju greiða fyrir mig hótelherbergi meðan á biðinni stæði. En ég var ekki ánægður og sagðist ekki hafa fengið nokkurn matarbita í marga klukkutíma. Hann fékk mér ávísun frá félaginu, sem hann sagði að ég gæti notað hvernig sem ég vildi, og meðal annars til að kaupa mér mat, hvað sem mig langaði til að fá mér. Þetta allt mýkti svolítið skapið, en innifyrir hrann stöðugt óánægjan yfir þessum óþægindum, sem ég varð að fá útrás. „Ef félagið hefði lagt kapp á að halda áætlun sinni, hefði ég nú getað verið heima hjá konunni minni í nótt,“ sagði ég enn gramur í bragði. Maðurinn hikaði ekki eitt andartak en mælti síðan: „Mér þykir þetta leitt, herra minn, en ein- hvers staðar verðum við að setja takmörkin.“ ★ Hérna á dögunum varð drengur á 14—15 ára aldri skyndilega veikur af botnlangabólgu. Það var þegar farið að undirbúa uppskurð, en á með- an verið var að búa allt undir hann, kom móðir drengsins að máli við hjúkrunarkonuna og spurði: „Þið hafið væntanlega ekki rakarastofu hérna við sjúkrahúsið?“ „Hvers vegna spyrjið þér að því?“ spurði hjúkrunarkonan. „Jú, mér var að detta í hug, hvort við gætum ekki látið klippa hann á meðan hann sefur eftir svæfinguna?“ ★ Landbúnaðarráðherrann fékk fyrir skömmu bréf frá húsmóður einni, þar sem hún skýrir hon- um frá því, að hún um þriggja mánaða skeið hafi vegið þær kartöflur, sem hún keypti hjá kaupmanni sínum. Kom þá í ljós, að hún hafði greitt 13,50 kr. fyrir þá mold, sem fylgdi kart- öflunum. „Ég er ekkert á móti því að styrkja landbúnaðinn,“ sagði hún, „en þurfum við einnig að kaupa af þeim mold?“ HEIMILl OG SKÓLI 77

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.