Heimili og skóli - 01.08.1968, Blaðsíða 42

Heimili og skóli - 01.08.1968, Blaðsíða 42
'komu frá fátækum heimilum. Þau höfðu ákveðið, að litla dóttir þeirra skyldi ekki þurfa að alast upp við sömu kjör, heldur fá allt, sem þau höfðu orðið að neita sér um. Allar óskir hennar, smáar og stórar, voru uppfylltar. Stundum áður en hún hafði borið þær upp. Henni var hlíft við öllu ■mótlæti, sem stendur í valdi ástríkra for- eldra að bægja frá barni sínu. Ég man til •dæmis eftir því, að þeim kom saman um að láta hana ekki fara í skólann dag einn, vegna þess að hún 'hafði ekki getað lokið við að læra það, sem henni var sett fyrir. í stað þess að hjálpa henni við he.maverk- in, Iofuðu þau henni að fara í kvikmynda- húsið. „Blessað barnið grét svo sárt, að við þoldum ekki að hlusta á hana,“ sagði faðir hennar til skýringar. „Lífið er sann- arlega nógu harðleikið, þegar börnin verða fulltíða, að það er engin ástæða t'l að við gerum þeim lífi erfitt á meðan þau eru ung,“ sagði hann. En þetta voru sömu foreldrarnir, sem urðu nálega viti sínu fjær nokkru síðar, iþegar dóttir þeirra hætti i skóla eftir stutt nám. „Að hugsa sér að gera þannig að engu alla sína menntun aðeins vegna þess, að háskólinn heimtar aukapróf í einni n'ámsgreininni! “ sagði faðirinn titrandi af reiði. „Hvenær gierir hún sér ljóst að lífið er ekki aðeins leikur, og hún verður að taka á veikefnunum, þegar þau verða á vegi hennar?“ Það gerir hún ekki fyrr en einhver kenn- ir henni það. Og það er ekki nærri því eins erfitt þegar byrjað er á því í bernsku, á meðan foreldrarnir standa enn við hlið harnsins til að hj'álpa til, eins og síðar í lífinu, þegar maður á sjálfur að ráða fram úr vandanum. Auðvitað eru engar reglur til um barna- uppeldi, sem leysir öll vandamál lífsins. En 86 HEIMILI OG SKÓLI með tiu ára reynslu sem kennslukona og 'fimmtán ára reynslu sem móðir hef ég sannfærzt um að þroski 'barnsins er undir því kominn, að það hafi bæði verið búið undir meðlœti og mótlæti. En hvernig förum við að því? Alveg sérstaklega með því að segja því alltaf sannleikann. Við megum ekki fara fram hjá honum, þótt hann geti verið óþægilegur. Ég þekkti einu sinni mann, sem lét dóttur sína fá eins mikla peninga og hún óskaði éftir að fá. En svo kom að því, að verzlun hans fór að ganga illa. Fað- irinn hafði þá eikki hugrekki til að segja 'henni sannleikann, jafnvel þótt hún væri orðin nægilega gömul til að skilja erfið- leikana. Hún hélt auðvitað eyðsluvenjum sínum áfram, sem enduðu með því að hún undifbjó brúðkaup sitt með slíkum íburði, sem faðir 'hennar enganveginn gat staðið straum af. En hann lét það samt vera að segja henni hið sanna. í öðru lagi verðum við að vera börnum okkar sú stoð og stytta, sem við framast getum. Einn af nemendum mínum, 12 ára drengur, kom dag nokkurn til mín, og það var auðséð, að honum lá eitthvað mikið á 'hjarta. Ég sá, að hann neytti allra krafta til að ég sæi ekki að honum lá við gráti. Faðir hans hafði misst hverja stöðuna á fætur annarri og við hvert óhapp varð hann stirðari og miskunnarlausari við fjölskyldu sína. Þegar drengurinn spurði móður sína, hvað væri eigin'lega að pabba, svaraði hún: „Faðir þinn er drykkjumaður. — Nú veiztu það — og ég vil ékki að minnst sé á þetta framar. Heyrir þú það?“ Hún sagði syni sínum að vísu sannleik- ann, en hún studdi hann ekki, eða útskýrði málið fyrir honum, svo að hann ætti auð- veldara með að skilja hvernig komið var. Hún sagði honum ekki að ofdrykkja væri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.