Heimili og skóli - 01.08.1968, Page 47

Heimili og skóli - 01.08.1968, Page 47
umh'verfi gerir manninn að því. sem hann er. Nálega öll óhamingja í heiminum og nálega öll ihamingja á rætur sínar að rekja til erfða, en ekki umíhverfis.“ J. B. Watson segir 1925: ,,Fáið mér í hendur tylft heilbrigðra smábarna og mína eigin veröld 11 að ala þau upp í, og ég full- yrði, að ég get gert úr jþerm hvaða mann- tegund sem er; lækna, málflutningsmenn, listamenn, forstjóra, — já, meira að segja þjófa... Hér er Sinclar Leewis frekar á skoðun þeirra, sem varðar eru af erfðafræðingum og uppeldisfræðingum. Maðurinn er raun og veru samtala hæði atf erfðum og um- hverfi. Erfðirnar veita viss ákilyrði og setja ákveðin takmörk. Umhverfið ræður því, innan vissra takmarka, 'hvaða mögu- leikar fá að komast að. Jú, sannarlega: uppeldið er ekki áhrifa- laust eða gagnslaust. Umhverfið hefur áhrif hæði til góðs og ills á börnin, hátta- lag þeirra og seinni örlög. Fordæmið er heldur ekki áhrifalaust. Það er ekki sama hvaða fordæmi foreldrar gefa íbörnum sínum, eða hvernig við erum. Það má fullyrða með réttu, að fordæm- ið er einhver sterkasti þátturinn í uppeld- inu. Hin ósjálfíáðu áhritf, sem alltaf leyn- ast í fordæminu, eru þess verð, að við upp- alendur gefum þeim gaum, og að við, með framkomu okkar, getum í senn haft mark- viss áhrif til góðs, eða mjög óheppileg áhrif á börn okkar, eftir því bvernig á er haldið. í þessu sambandi er vert að benda á það fyriíbrigði sem stundum er nefnt „óbeinar erfðir“, en stundum „sálfræðileg smitun“. Þessi skilgreining er oftast notuð um venjubundnar ytri fyrirmyndir. Börn'n lrkja ósjálfrátt dftir venjum foreldra sinna. Sonurinn gengur á sama hátt og faðirinn, eða notar sömu kæki og hætti. Dóttirin lík- ir eftir vinnuháttum móðurinnar og hreyf- ingum. Þessar eftirlíkingar geta ver.ð svo raunsannar að það er stundum sagt: „Hann er alveg lifandi eftirmynd föður síns.“ „Það er eins og við sjáum fyrir okkur hana móður hennar.“ Þá má heyra svona at- hugasemdir: „Þetta hefur hann tekið í arf frá föður sínum.“ En venjulega er hér um að ræða óafvitandi stælingu. Hjón, sem 'búið bafa saman í mörg ár, „erfa“ á sama hátt sitthvað hvort frá öðru. Líkjast smátt og smátt hvort öðru. Þ. e. a. s.: Verða fyrir gagnkvæmri, andlegri smit- un hvort frá öðru. Það er ekki sert ráð fyrir, að sálrænir eiginleikar eða viðhorf erfist beint. Drykk- feldni eða þjófgefni eru ekk' arfgengir gallar. Ora ertfði ekki drykkfeldni sína frá föður sínum, en hann hefur kannski tekið að erfðum ,^þyrsta sál“, mikla þörf fyrir drykki, og kannski þannig andlega og lík- amlega gerð, að hann féll auðveldlega fyr- ir freistingunni. Var leiðitamur, einnig þegar um illt fordæmi var að ræða. Myton var aftur ihræddur við illt tfordæmi. For- dæmið gegndi þv'í hlutverki hjá báðum, en það 'olli ólíkum afleiðingum, vegna þess að eðli piltanna var ólíkt. Fordæmið er ákaflega mikilvægt, og máttur þess er svo mikill, að hann verður naumast fullmetinn, en áhrif fordæmisins eru svo flókin, að það er ekki nóg að ganga um og vera góð fyrirmynd barni sínu. Það er e'kki nóg að vera fyrirmyndarforeldrar. Hvernig förum við þá að? Hvers konar fyrirmynd er það, sem við höfum fyrir 'börnum okkar? Hvaða álhrif höfum við á aðra? Hvernig er litið á okkur af umhverfinu, meðal .annars af börnum okkar? Ég held, að það gæti verið gott tfyrir okkur, að reyna HEIMILI OG SKÓLI 91

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.