Heimili og skóli - 01.08.1968, Blaðsíða 49

Heimili og skóli - 01.08.1968, Blaðsíða 49
hinu sterkasta einkenni í fjölskyldunni, og það verður Iþví miður að játa, að þetta hefur ekki alltaf jákvæð áhrif. Oáreiðanleiki og siðgæðislegt los hafa einnig tilhneigingu til að ganga frá for- eldrum til íbarna. Samúð okkar og andúð eru einnig smitandi, o.g sömuleiðist mat okkar á mönnum og málefnum. Gagnstætt hefur undanlátssemi og veik- leiki tilhneigingu til að börnin taki gagn- stæða afstöðu í lífinu. Það getur litið einkennilega út, en stundum virðist sem það séu sérstaklega dyggðir okkar og eftirlátssemi, sem örfa börn okkar til uppreisnar og mótlþróa. Þetta þaíf nokkurrar skýringar við svo að við gerum okkur ekki í hugarlund að því dyggðasnauðari sem foreldrarnir eru, eða því gallalausari sem þeir eru, því betur muni börnin þeirra reynast. Svona einfalt er þetta ekki. Börn drykkjumanna verða oft, en ekki alltaf, áhugasamir bindindismenn. I mínu ungdæmi var kveðið svo að orði: „Börn prestanna eru þau börn, sem slarka mest.“ Þetta er auðvitað ekki rétt eða sanngjarnt, að ibeina svona ásökunum til heillar stétt- ar, en það liggur þó í þessum ofurlít’.ð sannleikskorn. Það er sem sé erfitt að líkja eftir hálfhelgum mönnum. Það er miklu auðveldara að vera í andstöðu við þá. Helgir menn geta jafnvel verið svo óþol- andi í augum barna og unglinga, að þau kjósi að minnsta kosti að vera eitthvað öðruvísi. Af þessu miá þó draga nokkuð algenga reglu, sem hefur við sæmileg rök að styðj- ast og nota má í sambandi við nálega hvaða e’ginleika og venjur, sem ég hef nefnt hér að framan: Ofgar og o'fstæki leiða alltaf af sér and- spyrnu og uppreisnarhug. En andstaða og uppreisnarhvöt leiða af sér yfirtroðslur og brot. Séu öfgarnar og ofstækið leiddar af foreldrunum út í yztu æsar, er mikil hætta á, að hið sama verði uppi á teningnum hjá börnunum, og úr þessu verði eins konar skrípamynd bæði hjá börnum og foreldr- um. Það er dásamlegur eiginle’ki að geta alltaf verið glaður, kátur, fjörugur og í góðu skapi, en þó getur þetta einnig geng- ið út í öfgar og orðið ólþolandi. Það getur orðið svo þreytandi, að það kalli á and- stöðu og uppreisn. Það er yfirleitt gæfa barna, að eiga iðna, duglega og skyldurækna foreldra. En þessi iðni getur gengið svo langt, að það hafi lamandi áhrif á börnin. Þau gefast upp o.g kasta sér yfir í hina hliðina: verða áhuga- laus, löt og útihaldslaus. Alla góða eiginleika má ala upp til slíkr- ar fulíkomnunar og nákvæmni, að þeir lama barnið í stað þess að örfa það og hvetja til eftirbreytni. Það getur orðið h’n mesta óhamingja .fyrir ibarnið að eiga svo fullkomna fyrirmyndarforeldra. Og því meir, sem við hömpum eða höld- um fram fullkomnun okkar eða maka okk- ar, því meir, sem við hendum á ófullkom- leik barnsins (þetta tvennt fylgist oft að) því öruggara verður það, að barnið gefist upp og hopi yfir í hina hliðina. Því örugg- ara er það að gott fordæmi Ihefur óheilla- vænlegar afleiðingar. Það er ekki hér með sagt, að barnið megi ekki vera lifandi eftirmynd foreldra sinna. Það væri ósanngjörn krafa vegna þess, að hæfileikar harnsins og öll gerð eru senni- lega ekki h’nir sömu og foreldranna. Það er að minnsta kosti víst, að því hærri kröf- ur, sem við gerum í þessum efnum í því ríkari mæli leggjum við grundvöll að upp- reisnaranda hjá barninu. Þetta getur geng- ið svo langt, að allt það, isem við leggjum HEIMILI OG SKÓLI 93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.