Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 12
þau hinsvegar oft og tíðum séu svo nátengd og sam-
ofin því, sem gerist í verkalýðshreyfingunni, að
það sé ekki gott að greina á milli.
Sampykktir síðasta flokksþmfjs.
Þegar síðasta flokksþing Alþýðuflokksins var
hág fyrir réttum tveimur árum, voru eins og venju-
lega gerðar ályktanir, sem marka áttu stefnu og
störf Alþýðuflokksins í framtíðinni. Þá var svo hög-
um háttað, eins og alkunnugt er, að Alþýðuflokk-
urinn átti fulltrúa í samstjórn þriggja flokka, og
hafði átt um rúmlega hálfs annars árs skeið, sam-
kvæmt ákvörðunum, er stjórn Alþýðuflokksins og
þingflokkur hans tóku á sínum tíma, eða í aprílmán-
uði 1939.
Ályktanir þær, sem gerðar voru á síðasta flokks-
þingi voru því að sjáKsögðu að verulegu leyti mið-
aðar við það ástand í stjórnmálum, sem ríkjandi
var, og afstöðu Alþýðuflokksins til annarra flokka.
í ályktun þessa flokksþings var svo ákveðið að
þingið teldi æskilegt, að á slíkum alvörutímum
væri náið samstarf milli lýðræðisflokkanna um
þjóðmálin, en að skilyrðið fyrir slíku samstarfi væri
það, að þing og stjórn gerði ráðstafanir til þess,
að ekki yrði fyrir borð borinn hlutur neinnar stétt-
ar í þjóðfélaginu og þess vandlega gætt, að engri
stétt héldist uppi að bæta hag sinn á annara kostn-
að, svo og, að full hollusta yrði sýnd í samstarfinu.
Þessi ályktun, sem hér er efnislega nákvæmlega
10