Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Blaðsíða 21
þar sem. atvinnuvegirnir, sem ríkið hefir orðið að
styrkja allríflega eða undanþiggja sköttum, hafa
haft mjög góða afkomu síðastliðið ár og geta því
borið allverulegan hluta af beinu sköttunum.
Virðist því réttmætt og sjálfsagt að létta nokkuð
af þeim auknu byrðum af almenningi í landinu,
sem nauðsynlegt þótti að láta hann bera meðan erfitt
var í ári fyrir hið opinbera. Það hefir og alltaf ver-
ið lögð áherzla á það af þinginu, að um bráðabirgða-
löggjöf væri að ræða.“
1 þessu nefndaráliti var einnig rætt ítarlega um
umreikning teknanna vegna dýrtíðarinnar og í sam-
ræmi við vísitölu, um hækkun persónufrádráttar
fyrir fjölskyldumenn og um breytingu á varasjóðs-
frádrætti félaga.
Um skattalögin sjálf urðu allmikil átök á þessu
Alþingi, og hélt Alþýðuflokkurinn fram þeirri
stefnu sinni, sem mörkuð var af flokksþinginu og
nánar var skýrð og rakin í nefndaráliti Jóns Blöndals.
Alþýðuflokkurinn fékk því til vegar komið, að
skatturinn á láglaunamönnum og miðlungstekjum
var verulega lækkaður með hinni svonefndu ,,um-
reikningsreglu“ og hækkun persónufrádráttar fyrir
fjölskyldumenn. Sömuleiðis hækkaði skattstíginn
allverulega á háum tekjum, og lagður var á stríðs-
gróðaskattur, þótt hann væri lægri en Alþýðuflokk-
urinn vildi vera láta. En Sjálfstæðismenn kröfðust
þess, að dregin skyldu frá tekjum útgerðarfyiúrtækj-
anna öll þau töp, sem orðið hefðu hjá fyrirtækjun-
um undanfarin 10 ár, án tillits til þess, hvort þau
19»