Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Blaðsíða 50
d. Skyldusparnaði sé komið á og almenningi tryggð-
ir hæfilegir vextir af skyldusparifé. Undanþegnar
skyldusparnaði séu tekjur, sem varið er til að
greiða ákveðnar skuldir. Ensn fremur séu undan-
þegnar tekjur upp að vissu marki, er miðað sé
við ómagafjölda_
III. Kjör launþega og bænda.
a. Unnið sé að því, að kaupgjald verði samræmt
um allt land með samningum við verkalýðsfélög-
in og komið á allsherjarsamningum um kaup og
kjör launþega. Sé við þá samninga höfð hliðsjón
af þeirri aukningu þjóðarteknanna, sem átt hefir
sér stað síðan stríðið hófst. Full dýrtíðaruppbót
sé greidd á kaupið.
Verðlag á innlendum landbúnaðarafurðum sé
ákveðið eftir fyrirfram ákveðinni vísitölu, er
fundin sé á þann hátt, að verðlagið 1939 sé lagt til
grundvallar, að viðbættri þeirri hækkun, að bænd-
ur fái samsvarandi kjarabætur og launþegar,
miðað við sama tíma.
b. Vinnuaflið í landinu sé skipulagt með samkomu-
lagi við verkalýðssamtökin og með allsherjarvinnu-
miðlun til þess að tryggja sem bezta hagnýtingu
þess við nauðsynlega framleiðslu og framkvæmdir.
IV. Trygging atvinnunnar.
a. Verulegur hluti af tekjum hins opinbera sé lagður
til hliðar í því skyni að verja honum til fyrirfram
ákveðinna opinberra framkvæmda og fyrirtækja að
48