Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Side 22
stöfuðu af óviðráðanlegum örðugleikum í rekstrin-
um, eða óstjórn og óhófseyðslu eigendanna.
Alþýðuflokkurinn var mjög mótfallinn þessum
tapsfrádrætti, en að lokum hneig Framsóknarflokk-
urinn til fylgis við SjáKstæðismenn í þessu atriði,
og var málið því afgreitt af þessum tveimur flokk-
um.
Segja má með sanni, að skattalögin hafi fyrir
atbeina Alþýðuflokksins tekið miklum bótum þótt
ekki næðist samþykki fyrir öllu því, er flokkurinn
hefði kosið í því sambandi.
Hausfþingið 1941.
Þegar kom fram á sumarið 1941 tók Framsókn-
arflokkurinn að færa það í tal innan ríkisstjórnar-
innar, að sett yrði löggjöf, er festi kaupgjald og
verðlag íslenzkra afurða. Fulltrúi Alþýðuflokksins
í ríkisstjórninni andmælti þessu mjög eindregið, en
Framsóknarflokkurinn hélt fast við sínar tillögur og
leit svo út um tíma, að fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
íns myndu einnig fallazt á slíkt fyrirkomulag. Vegna
þessa máls var Alþingi kvatt saman haustið 1941
og hafði Famsóknarflokkurinn þá tilbúið frumvarp
til laga um bindingu kaupgjalds og verðlags, þar
sem meira ao segja var ákveðið, að það mætíi ekki
hækka kaup bótt vísitalan hækkaði.
Þegar til þess skyldi taka, að ákveða hvort frum-
varp þetta s'kyldi gert að stjórnarfrumvarpi eða
eigi, snérust þó fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gegn
málinu, eftir að þeir höfðu orðið þess varir, að
20