Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 23

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 23
íkjósendur flokksins voru málinu mjög andvígir. Þegar þetta skeði, baðst forsætisráðherra Hermann Jónasson lausnar fyrir allt ráðuneytið, eftir að sýnt var að meirihluti Alþingis var frumvarpinu and- vígur. Stóð svo í nokkru þrefi um mál þetta á Alþingí langa hríð, en að lokum varð það úr, að sama stjórn og áður, tók við völdum að nýju, — sömu menn með sömu verkaskiptingu. En það kom brátt í Ijós á eftir, að engar tilraunir voru gerðar af hálfu fulltrúa hinna flokkanna, Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins, til þess að notfæra sér frek- ar en áður heimildarlögin um ráðstafanir gegn dýr- tíðinni, er samþykkt voru á aðalþinginu 1941. 1 stað þess héldu íslenzkar afurðir áfram að 'hækka í verði, og dýrtíðin óx hröðum skrefum. Var þetta til mikils óhagræðis fyrir allar launastéttir landsins, ekki sízt sökum þess að margar þeirra höfðu engar grunnkaupshækkanir fengið um næstliðin áramót, En dýrtíðaruppbót fengu menn fyrst eftir nokkurnt tíma, og eftir að þeir höfðu orðið að kaupa hækk- andi vöirur, og það mestu nauðsynjavörurnar, um. alllangt skeið, án nokkurrar kauphækkunar. Upphaf ársins 1942. Þegar leið að áramótum 1941/2 sögðu nokkur iðnaðarmannafélög í Reykjavík upp samningum sín- um við atvinnurekendur og kröfðust grunnkaups- hækkunar, er nam 10—20%. — Auðfundið var á 21

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.