Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 28
þingflokkur Alþýðuflokksins til athugunar, að leggja
fyrir alþingi frumvarp til breytinga á kjördæma-
skipun landsins, er leiðrétti að nokkru það skipulag,
er gilti. Var þetta miðað við að kosningar færu fram
vorið 1942, enda þótti einsætt að svo yrði vegna
þess að miðstjórn Framsóknarflokksins hafði gert
ákveðna ályktun um að alþingiskosningar skyldu
fram fara.
Mál þetta var ítarlega rætt innan miðstjórnar-
innar og þingflokksins, og þar ákveðið, að Alþýðu-
flokkurinn skyldi bera fram á alþingi írumvarp til
stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnar-
skránni. Var breytingin í því fólgin, að kaupstað-
irnir þrír, Akranes, Neskaupstaður og Siglufjörður
skyldu verða sérstök kjördæmi, — að þingmönnum
Reykjavíkur skyldi fjölgað um tvo, og komið á
hlutfallskosningum í tvímenningskjördæmum lands-
ins. — Mál þetta var samþykkt í miðstjórninni hinn
21. febrúar 1942, og falið þingflokknum til fyrir-
greiðslu.
Það var auðséð, að Framsóknarflokkurinn myndi
þegar í stað rísa öndverður gegn þessu máli, en óvíst
um afstöðu Sjálfstæðisflokksins. í fyrstu leit út fyrir
að Sjálfstæðismenn myndu ekki fylgja frumvarpinu,
en þegar frá leið og Sjálfstæðismönnum fór að verða
ljós áhugi flokksmanna sinna fyrir málinu, létu þeir
tilleiðast og studdu frumvarpið, — þó með þeim
breytingum frá því, sem Alþýðuflokkurinn hafði
viljað, að ekki skyldu búin til nein ný kjördæmi
nema Siglufjörður.
Þegar Sjálfstæðismenn snérust þannig til liðs við
26