Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Síða 29
kjördæmamálið, varð augljóst, að samstarfi Fram-
sóknarflokksins og Sjálfstæðismanna um ríkisstjórn
Maut að vera lokið.
Vaknaði þá það vandamál, á hvern hátt hægt væri
að mynda stjórn til þess að fara með völdin meðan
mál þetta yrði til lykta leitt, — því að Hermann
Jónasson hafði beðizt lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt, og fulltrúar Framsóknarmanna í ríkisstjórn
voru ákveðnir í því að hverfa burt úr stjórninni.
Á fundi miðstjórnar Alþýðuflokksins 6. maí 1942
var það upplýst endanlega, að Sjálfstæðisflokkurinn
myndi fylgja fram kjördæmabreytingunni á þá lund,
er áður greinir, og bauðst hann til þess að mynda
ríkisstjórn úr sínum flokki til þess að stjórna meðan
kjördæmabreytingin yrði útkljáð, enda væri þá
tryggt fylgi eða hlutleysi nægilega margra annarra
þingmanna. Út af þessu ályktaði miðstjórn og þing-
flokkur Alþýðuflokksins:
„Alþýðuflokkurinn lýsir yfir því, að hann mun
ekki greiða atkvæði með vantraustsyfirlýsingu á
ríkisstjórn, sem mynduð er vegna kjördæmamálsins
og telur verkefni sitt að tryggja fullnaðarafgreiðslu
þess, og skipuð er Sjálfstæðismönnum einum, ef slík
tillaga verður borin fram af andstæðingum kjördæma
breytingarinnar, enda sé jafnframt tryggt, að flokk-
ar þeir, sem breytingunni fylgja, standi saman um
að tryggja fullnaðarafgreiðslu málsins á næsta þingi
og greiði allir atkvæði með slíkri tillögu."
Eftir að þetta haíði skeð, tók stjórn Ólafs Thors
við völdum og var hún einungis skipuð Sjálfstæðis-
mönnum. Naut stjórnin á þann hátt, er áður greinir,
27