Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Blaðsíða 6
Islands að veita pólsku þjóðinni aðstoð í þrengingum
sínum með sama hætti og aðrar grannþjóðir okkar gera
og bendir í því sambandi sérstaklega á, að Pólverjum
verði gert kleift að kaupa héðan vörur á lánskjörum, sem
taki mið af ríkjandi ástandi í Póllandi."
Jafnframt samþykkti þingið að senda svohljóðandi skeyti
til Solidarnos.
„40. þing Islenskra jafnaðarmanna sendir Samstöðu og
öllum pólskum verkalýð baráttukveðjur."
Kristín Guðmundsdóttir gerði grein fyrir störfum kjör-
bréfanefndar, en sömu kjörbréf giltu og á síðasta flokks-
þingi.
Konur úr Sambandi Alþýðuflokkskvenna fluttu dagskrá
í tilefni 100 ára afmælis Jóhönnu Egilsdóttur, með ljóða-
lestri og upplestri, m. a. úr endurminningum Jóhönnu.
Dagskrána önnuðust þær Helga Kristín Möller, Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir, Helga S. Einarsdóttir og Sólveig
Helga Jónasdóttir.
Starfsmenn þingsins voru kosin:
Forseti: Hrafnkell Ásgeirsson.
1. varaforseti: Hlín Daníelsdóttir.
2. varaforseti: Snorri Guðmundsson.
Ritarar voru kosnir:
Sigríður Einarsdóttir og
Hreinn Erlendsson.
Kosin voru í kjarna að starfshópum:
a) Um stjórnmál og atvinnumál: Sighvatur Björgvinsson,
Guðmundur Oddsson, Karl Steinar Guðnason og
Jóhanna Sigurðardóttir.
4