Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Blaðsíða 9
Næstur talaði Jón Sæmundur Sigurjónsson og síðan
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir. Að lokum svöruðu framsögumenn,
þeir Geir Gunnlaugsson og Sigþór Jóhannesson fyrirspurn-
um um laga- og skipulagsmál. Bjarni Guðnason, fram-
sögumaður um byggðamál, svaraði framkomnum athuga-
semdum um það mál. Var þá umræðum lokið.
Forseti lýsti tillögu frá Bjarna P. Magnússyni og Snorra
Guðmundssyni, um að fella eftirvinnu inn í dagvinnu til
kaupauka. Var tillögunni vísað til nefndar. Síðan var fundi
frestað.
SUNNUDAGUR 25. október 1981.
Þinghaldi fram haldið kl. 14.00.
Álit frá umræðuhópi sem fjallaði um byggðamál.
Frummælandi: Árni Gunnarsson og lagði fram ályktun
um byggðamál.
Næstir tóku til máls undir þessum lið: Sighvatur Björg-
vinsson, Jón Karlsson og Sigurður E. Guðmundsson.
Ágúst Einarsson gerði grein fyrir störfum ferðajöfnunar-
nefndar.
Síðan héldu umræður um byggðamál áfram og talaði þá
fyrstur Kjartan Jóhannsson. Mælti hann með orðalags-
breytingu í niðurlagi álits nefndarinnar.
Árni Gunnarsson lýsti yfir, að vinnuhópur um byggða-
mál gæti fallist á tillögu formanns.
Fleiri höfðu ekki kvatt sér hljóðs og var gengið til
atkvæða og var álitið samþykkt samhljóða.
Almennar stjórnmálaumræður.
Hófust nú almennar umræður og tóku eftirtaldir full-
trúar til máls: Jóhannes Guðmundsson, sem lagði fram
tillögu um sameiginlegt prófkjör stjórnmálaflokka. Síðan
7