Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Qupperneq 28

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Qupperneq 28
endasambandinu og Kjartans Ólafssonar, varaformanns Alþýðubandalagsins. Alþýðubandalagsráðherrarnir fram- kvæma nú hvert skrefið af öðru í þeirri leiftursókn, sem íhaldið boðaði fyrir seinustu kosningar, en sjálfsánægjan og valdahrokinn hjá ráðherrum Alþýðubandalagsins leyna sér ekki. Samningar fjármálaráðherrans við lækna koma þjóðinni ekki við, segja þeir. Félagsmálaráðherra talar um að það sé verið að ráðast að mannorði sínu, ef upplýst er um bitlingabrask hans. Allir verkalýðssinnar, allir vinstri menn verða að snúast af alefli gegn þessari nýju framrás íhaldsaflanna í landinu undir forsjá forystusveitar Alþýðubandalagsins. Allt launafólk verður að snúast til varnar gegn þeirri íhaldsstjórn, sem hér situr við völd. Sundurlyndi vinstri fólks á íslandi hefur aukið veg íhaldsaflanna. Nú er hættan meiri en nokkru sinni fyrr á yfirtökum íhaldsins. Sundurlyndi hefur iíka verið ógæfa íslenskra jafnaðar- manna. Fyrir kosningarnar 1978 sameinuðust fjölmargir jafnaðarmenn í Alþýðuflokknum, sem áður voru í öðrum samtökum. Þá vann Alþýðuflokkurinn mikinn sigur. Þá sannaðist sem fyrr að samstaða er styrkur, eining er afl. Alþýðuflokkurinn er öðrum stjórnmálaflokkum lýðræðis- legri og opnari. Það er líka styrkur, en þá verðum við sömuleiðis hvert og eitt að lúta lögmálum lýðræðisins í verki og starfi. Lýðræðið er ekki bara gott, það gerir miklar kröfur. Ábyrðarleysi og sundrungariðja eru mein, sem geta miklu spillt og miklum skaða valdið. Áreynslutími er að baki, en látum á okkur sannast, að við eflumst af hverri raun, því verkefnin framundan eru mikil. 26

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.