Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Qupperneq 43

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Qupperneq 43
bands íslands og Sjálfstæðismönnum hefur verið afhent oddaaðstaða þar. Jafnframt þessu hafa Alþýðubandalagið og málgögn þess lagt ofurkapp á að upphefja þá íhaldsþingmenn, sem Alþýðubandalagið leiddi til öndvegis í ríkisstjórninni. Ekki aðeins hafa Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn fengið örfáum íhaldsmönnum völd og áhrif eins og um heilan stjórnmálaflokk væri að ræða, heldur jafnframt lagt allt kapp á að hjálpa þeim til sjálfstæðrar flokksstofnunar. Allt bendir nú til þess að nýr íhaldsflokkur sé í upp- siglingu. Fyrsta verkefni slíks flokks verður að freista þess að vinna Reykjavíkurborg úr höndum vinstri manna. Næsta verkefni hans verður að reyna að ná undirtökum með Sjálfstæðisflokknum eftir næstu þingkosningar, þannig að íhaldsöflin geti tekið forystu í stjórnmálalífinu. Þá gætu íhaldsöflin nýtt sér þá oddaaðstöðu, sem Alþýðubanda- lagið og Framsóknarflokkurinn hafa fengið þeim í verka- lýðshreyfingunni. Kauplækkunarríkisstjórn. Til þess að auðvelda íhaldsöflunum í landinu og koma þannig undir sig fótunum, hafa ráðherrar Alþýðubanda- lagsins auk þess fallist á að standa með íhaldinu að fram- kvæmd allra þeirra atriða, sem verkalýðshreyfingin gagn- rýndi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks- ins harkalegast fyrir á árunum 1974 til 1978 og urðu þeirri stjórn að falli. Alþýðubandalagið hefur með vald- boði ógilt undirskrift ráðherra síns undir kjarasamninga við starfsmenn ríkisins og samþykkt að lækka laun almenn- ings í landinu um 7% með lögum. Alþýðubandalagið hefur fallist á að bera ábyrgð á gerð kjarasamninga við lækna, sem fólu í sér 19—40% launahækkanir, en predik- 41

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.