Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Blaðsíða 26
sinni fyrr. Allir sjóðir hafa verið tæmdir og þeir eru
meira að segja farnir að taka lán fyrir útgjöldum sínum.
Hryggilegast er þó að horfa upp á þá láglaunastétt sem
komið hefur verið upp hér á íslandi og skrimtir á sultar-
launum. Þetta er smánarlegt. Kjör hinna verst settu verður
að bæta. Launataxta hinna lægst launðu verður að hækka
sérstaklega. Ef það hrekkur ekki, þá verður samfélagið að
koma til móts við þetta fólk með skattalækkunum og með
afkomutryggingu eins og við Alþýðuflokksmenn höfum
flutt tillögur um á Alþingi við umfjöllun skattalaga. Það
er skylda samfélagsins.
Sama gildir um málefni húsbyggjenda. Þar höfum við
Alþýðuflokksmenn flutt tillögur um aukningu langtímalána
og sýnt fram á, hvernig megi ná árangri í þeim efnum.
Þannig höfum við í hverju málinu á fætur öðru á Alþingi
sýnt fram á hver stefnumörkunin á að vera. Hér hefur
ekki verið um yfirboð að ræða, heldur raunhæfa, skyn-
samlega stefnumörkun.
I íslenskum stjórnmálum ríkir furðulegt en mjög áhyggju-
samlegt ástand. Forystusveit Alþýðubandalagsins og Fram-
sóknar kusu á sínum tíma að leiða íhaldið til öndvegis
í núverandi ríkisstjórn, — ríkisstjórn, sem síðan hefur
reynst einhver mesta íhaldsstjórn, sem setið hefur að
völdum á Islandi. I framhaldi af þessari ákvörðun skipaði
forystusveit Aiþýðubandalagsins flokksbræðrum sínum í
verkalýðshreyfingunni að rjúfa þar samstarf við og sam-
stöðu með Alþýðuflokknum, en leiða íhaldið til öndvegis.
Samvinna íhalds og komma er reyndar ekki ný af
nálinni. Við höfum kynnst henni áður. Þetta gerðist á
sínum tíma þegar kommúnistar og íhald sameinuðust um
að rjúfa tengslin milli Alþýðuflokksins og Alþýðusam-
24