Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Qupperneq 44
ar samtímis yfir láglaunafólki, að handa því sé ekki svig-
rúm til nema 2% grunnkaupshækkana. Alþýðubandalagið
hefur fallist á að bera ábyrgð á því með Framsóknar-
flokknum og íhaldinu, að kaupmáttur kauptaxta verka-
fólks er nú 12 stigum færri, en hann var um það leyti,
sem ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar var felld sumarið
1978, þrátt fyrir þá hagstæðu þróun í utanríkisviðskiptum
að undanförnu, sem hefði átt að geta skapað möguleika
til verulegrar kaupmáttaraukningar. í kosningabaráttunni
1979 þóttist Alþýðubandalagið vera höfuðandstæðingur
leiftursóknaraflanna. Nú situr það í ríkisstjórn undir for-
ystu talsmanns leiftursóknarinnar.
Að baki þeirrar glansmyndar, sem ríkisstjórnin hefur
búið til, býr hrikalegt ástand í atvinnumálum. Atvinnu-
vegir landsmanna eru reknir á erlendum lánum þ. á m.
orkuiðnaðurinn og jafnvel þær búgreinar, sem til þessa
hafa reynst einna arðbærastar svo sem eins og loðnuveið-
arnar. Þá er fyrirsjáanlegt, að síldveiðar stöðvist innan
örfárra daga þar sem ekki hefur tekist að selja síld á
verði, sem nægir til þess að veiðarnar beri sig. Almennt
fiskverð, sem taka átti gildi 1. október s. 1. hefur enn ekki
verið ákveðið. Þá eru uppi áform um að jafna milli greina
í sjávarútvegi með millifærslum. Slíkt mun hafa í för með
sér stóráfall fyrir atvinnugreinina í heild þar sem það
þjónar þá ekki lengur tilgangi að reyna að semja um sem
hagstæðust verð á erlendum mörkuðum.
Megi marka þær skoðanakannanir, sem gerðar hafa
verið að undanförnu, hefur íhaldsöflunum verið að vaxa
ásmegin, og þau stefna að því að ná undirtökunum í
íslensku stjórnmálalífi á næstu misserum. Valdagleðin og
steigurlætið hafa byrgt foringjum Alþýðubandalagsins sýn.
42