Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Qupperneq 45
Hinir þrír ráðherrastólar Alþýðubandalagsins ætla að reyn-
ast íslenskum verkalýð og vinstri hreyfingu dýrkeyptir.
Með láglaunafólkinu, gegn íhaldinu.
Aukaþing Alþýðuflokksins haldið 24. og 25. október
1981 varar allt launafólk við þeirra háskalegu þróun,
sem fram hefur komið í verulega lækkuðum kaupmætti og
öryggisleysi í atvinnumálum. Þessi þróun mun leiða til
þess, að íhaldsöflin ná heljartökum á stjórnmálalífi lands-
ins. Aukaþing Alþýðuflokksins hvetur menn til andstöðu
við þessa hættulegu þróun og heitir á alla vinstri menn
og verkalýðssinna, hvar í flokki, sem þeir standa, tii
tafarlausrar andspyrnu gegn þessari framrás íhaldsaflanna
í landinu undir vernd hinnar nýju forystukynslóðar í
Alþýðubandalaginu. Aukaþing Alþýðuflokksins skorar á
verkalýðshreyfinguna að ganga nú fram fyrir skjöldu í
baráttu fyrir raunhæfum kjarabótum fyrir hina lægst laun-
uðu og þingið varar eindregið við því, ef undir yfirskyni
heildarsamstöðu í samningamálum á að láta láglaunafé-
lögin ganga fyrst frá óverulegum kjarabótum sér til handa,
en láta svo launafélögin koma í kjölfarið með sérsamn-
inga, þar sem læknasamningar fjármálaráðherra verði
hafðir að leiðarljósi.
Aukaþing Alþýðufiokksins felur Alþýðuflokksmönnum í
verkalýðshreyfingunni að leggja á komandi vikum megin-
þunga á baráttuna fyrir raunverulegum kjarabótum til
handa láglaunafólkinu, og ítrekar þá skoðun Alþýðuflokks-
ins að þar skipta höfuðmáli raunhæfar kjarabætur og
raunveruleg kaupmáttaraukning, en ekki innantóm pen-
ingalaunahækkun, sem ríkisstjórnin tekur tafarlaust til
baka eins og hún gerði á s. 1. ári. Aukaþing Alþýðuflokks-
ins felur jafnframt alþingismönnum flokksins að undirbúa
43