Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Side 7

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Side 7
Þingsetning 42. flokksþing Alþýðuflokksins var sett í Gamla Bíói föstu- daginn 16. nóvember 1984. Jón Sæmundur Sigurjónsson formaður undirbúnings- nefndar bauð gesti velkomna, sérstaklega forseta ASÍ, full- trúa bræðraflokkanna á Norðurlöndum, fulltrúa annarra þingflokka sem boðið var til þingsins, þar á meðal alla þing- menn Bandalags jafnaðarmanna, einnig fulltrúa erlendra sendiráða, þingfulltrúa og aðra gesti. Jón Sæmundur minntist látinna flokksfélaga og risu fund- armenn úr sætum í virðingarskyni við þá. Þá flutti Jón kveðj- ur flestra bræðraflokka í Evrópu og eins frá Alþjóðasam- bandi jafnaðarmanna. Herluf Gjerde flutti ávarp frá bræðraflokkunum á Norður- löndum. Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ ávarpaði þingið og ræddi um tengsl Alþýðuflokksins og verkalýðshreyfingarinn- ar. Fundarmenn sungu „Sjá roðann í austri“ og „Hver á sér fegra föðurland“. Hópur aldraðra flokksmanna var heiðraður, afhenti for- maður flokksins þeim rauða rós og minningabók um Jón Baldvinsson. Vigfús Jónsson flutti ávarp fyrir þeirra hönd. Fundarmenn sungu „Rósina“, við undirleik blásarahljóm- sveitar undir stjórn Björns R. Einarssonar, sú hljómsveit lék í hálftíma áður en fundur hófst, en forsöngvarar voru söng- hópur sem nefndi sig „Káta krata“. 5

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.