Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Síða 9
isbreytingar, svo sem í landbúnaðarmálum, fjárfestingarmál-
um, skattamálum, tollamálum og varðandi sjóðakerfið og
Framkvæmdastofnun var hafnað. Það var greinilega fast-
mælum bundið milli Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins að lögbinda leiftursókn niðurtalningar lífskjara, og
afnema samningsréttinn, þann helgasta rétt sem Alþýðu-
flokkurinn hafði barist fyrir að verkafólk og alþýða þessa
lands fengi. Launafólk skyldi bera allar byrðarnar, það skyldi
svipt samningsrétti og engar grundvallarbreytingar gerðar. í
slíka ríkisstjórn átti Alþýðuflokkurinn ekkert erindi. Við för-
um i ríkisstjórn til þess að ná árangri og ná fram stefnumið-
um okkar um kerfisbreytingar og til að verja kjör launafólks,
en ekki til skrauts eða stólanna vegna.
Sannleikurinn er sá að Alþýðuflokkurinn er kröfuharður
flokkur og á að vera það. Það er nóg af öðrum flokkum, sem
segja eitt og gera annað. Þannig er Alþýðuflokkurinn ekki og
á ekki að vera.
Hitt er annað mál að í hugum sumra var það líka áfall að
við skyldum ekki fara í ríkisstjórn eftir seinustu kosningar.
Á liðnu ári birtist okkur enn eitt áfallið. í ljós kom gífurleg-
ur fjárhagsvandi vegna útgáfu Alþýðublaðsins. Sú óreiða, sá
vandi var langtum stærri og meiri en nokkurn í forystusveit
flokksins óraði fyrir.
Við skulum ekki ganga þess dulin að þessi áföll; klofning-
ur, ósigur í kosningum, voru okkur þungbær og allt starf
flokksins leið fyrir fjármálavandann.
En nú er hið versta að baki og sóknarmöguleikar blasa við.
Alþýðuflokkurinn hefur áður mætt áföllum en ætíð eflst á
ný, þegar mest á reyndi. Svo mun einnig fara nú.
Styrkur stjórnmálaflokks felst nefnilega ekki í þvi einu að
sigra í kosningum, heldur ekki síður í því að búa yfir þraut-
seigju og þreki, þegar á móti blæs. Þennan styrk hefur Al-
þýðuflokkurinn. Það hefur hann sýnt. Á þeim styrk mun
hann byggja sókn sína núna.
Ég segi að sókn sé framundan, ekki af því að það verk verði
7