Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 12
Við þessar aðstæður þegar leitast er við að brjóta niður
samtök launafólks, hefur Alþýðuflokkurinn sérstöku hlut-
verki að gegna.
Þegar ráðist er gegn þeim grundvallarþáttum velferðar,
sem felast í félagslegri samkennd og umhyggju fyrir öldruð-
um, sjúkum og börnum, snýst Alþýðuflokkurinn til varnar.
Þegar launafólk á að bera byrðarnar meðan ofsagróði blas-
ir við á mörgum sviðum þá hefur Alþýðuflokkurinn verk að
vinna.
Misréttið blasir viö. Sumir maka krókinn, meðan fjöldi
launafólks býr við hin knöppustu kjör og örvæntingin leggst
yfir mörg alþýðuheimili.
Misréttið birtist líka í stórkostlegum skattsvikum. Margir
greiða lítið sem ekkert til samfélagsins en krefjast þeim mun
stærri hluta úr þjóðarkökunni. Almennt launafólk ber byrð-
arnar. Við þessu gerir þessi ríkisstjórn ekkert frekar en hinar
fyrri.
Við jafnaðarmenn krefjumst jafnréttis. Við krefjumst rétt-
látrar skiptingar eigna og tekna og réttláts skattkerfis. Til
þess þarf ný viðhorf og kerfisbreytingu.
Misréttið birtist sömuleiðis í misjafnri stöðu kynjanna.
Konur skipa láglaunastörf. Lögin um sömu laun fyrir sömu
vinnu duga ekki, þegar matið á störfunum er mengað af kyn-
ferðissjónarmiðum. Meðan svo er, þá búum við ekki við jafn-
rétti kynjanna. Hér þarf nýja skipan sem Alþýðuflokkurinn
og verkalýðshreyfingin verða að taka höndum saman um að
koma í höfn.
í því misrétti sem núverandi ríkisstjórn hefur magnað býr
ein meginmeinsemd efnahagslífsins. Meðan byrðum er órétt-
látlega skipt, meðan sumir sleppa við kjaraskerðingu og rétt-
láta skatta en aðrir fá ekki mannsæmandi laun verður aldrei
stöðugleiki í íslensku efnahagslífi. Misréttið magnar átök.
Þjóðirnar tvær í landinu; þeir sem byrðarnar bera og hinir
sem ætla sér allt munu sífellt takast á.
Afnám misréttis er því ekki einungis réttlætismál. Það er
10